Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Það er greinilega mikill munur á gengi krónunnar eftir því hver það er sem selur og kaupir. Á Íslandi stendur evran í 155 krónum meðan hún kostar 195 krónur í Evrópu.
Á Íslandi kostar kostar ein norsk króna 18,60 krónur meðan hún kostar 20,84 íslenskar krónur í kr í Noregi.
Fróðlegt væri að vita hvers vegna munurinn er svona milkill?
![]() |
Evran á 155-195 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.10.2008 | 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta viðtal við Grétar Þorsteinsson verður að teljast merkilegt í ljósi þess að Geir Haarde hefur haldið því fram að gott samstarf sé á milli ríkistjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins.
Út úr orðum Grétars má hins vegar lesa að ekkert samband er lengur á milli stjórnvalda og launþegasamtakanna. Sá áhugi hefur að öllum líkindum horfið þegar þegar ríkisvaldinu tókst að ljúga lífeyrissjóðina til að henda einhverjum hundruðum milljarða í hítina.
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvort samstarfið við stjórnarandstöðuna verður ámóta náið og samstarfið við launþegasamtökin.
![]() |
Launþegasamtök ekki boðuð til funda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.10.2008 | 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heiður var ásatrúarmönnunum ofar öllu öðru. Það kom berlega í ljós á Alþingi þegar árið 930 og þannig hélst það lengi. Eftir að hafa lesið blogg hjá Ómari R í morgun og datt mér i hug að birta mínar eigin hugrenningar um frumbyggja landsins okkar og viðhorf þeirra til heiðurs, vináttu og tryggðar.
Íslendingasögurnar segja að sjálfsögðu örlagasögu þeirra er fyrstir byggðu landið okkar. En rauði þráðurinn í sögunum er barátta höfðingjanna til að vernda heiður sinn og ættarinnar. Þá skipti miklu máli að eiga trygga vina því óvinir leyndust allstaðar.Egill Skallagrímsson átti fáa en trygga vini. Þannig var það með þá sem voru Óðins menn. Njáll á Bergþórshvoli var engin vígamaður og margt bendir til að hann hafi verið maður Njarðar og Freys áður en hann flæktist inn í kristnina. Freys menn og Njarðar voru gjarnan friðsemdar menn sem stunduðu kaupskap frekar en vígaferli. Gunnar á Hlíðarenda hefur mjög sennilega verið maður Þórs. Gunnar hefur verið í meðallagi greindur og frekar "naiv" á stundum. Tryggur var hann vinum sínum og gerði engum órétt. Og manna fræknastur var hann í hernaði og íþróttum. Þannig var það um marga .á er Þór fylgdu. Þór var talinn til hinna heimskari guða og ósjaldan nýtti Óðinn sér það að bregða sér í kvikinda líki og spila með Þór.Allir áttu þessar persónur sem ég hef nefnt það sameiginlegt að setja heiður, vináttu tryggð ofar öllu. Fóstbræðralagið var innsigli á ævilanga tryggð sem ekkert fékk grandað.Mér finnst stundum að stjórnmálamenn nútímans hefðu gott af því að lesa sögurnar og reyna að læra örælítið af þeim. Sérstaklega finnst mér að þeir í Frjálslyndaflokknum þurfi að læra hvað heiður og tryggð raunverulega þýðir. Þeir eiginleikar eru nefnilega jafn mikils virði í dag og þeir voru fyrir 1100 árum. Menn sem eru samherjar í stjórnmálaflokki vega ekki hver annan. Stjórnmálaflokkur er svo sem ekkert fóstbræðraígildi. En það er vettvangur sem menn hafa lýst yfir vilja að berjast saman á. Þegar samstaða bregst var það kallað ótryggð í Íslendingasögunum. Verra orðspor var ekki hægt að fá á sig á þeim tíma.
Alþingismennirnir í dag sverja eiða að því fara eftir samvisku sinni. Gera þeir það? Stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa svarið okkur launþegum eið, samkvæmt lögum lífeyrissjóðanna, að gæta hagsmua okkar og einskis annars. Gera þeir það þegar þeir virðast hafa tekið 200 milljarða úr sjóðunum erlendis til að flytja í hítina heima? Verkalýðsforystan hefur svarið okkur eið að því að gæta hagsmuna okkar. Gerir hún það á sama tíma og einn forystumanna hennar, Aðalsteinn Baldursson, vill að lífeyrissjóðirnir verði fluttir heim?
Ég er á því að allir sem einn þeirra sem með stjórn og löggjöf landsinsins fara ættu að taka sér góðan tíma þegar atinu nú er lokið til að lesa Íslendingasögurnar. Þeir gætu lært mikið af þeim Gunnari og Njáli, Agli og Arinbirni, Kjartani Ólafassyni og Hrafnkeli Freysgoða. Þeir geta mikið lært af þessum körlum, bæði gott og vont. Þeir þurfa nefnilega að skilja að heiður og tryggð eru kostir sem allataf eiga við. Ekki bara daginn sem þeir sverja þingeiðinn.
![]() |
Biðlað til helstu vinaþjóða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.10.2008 | 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Aðeins hefur verið skorað eitt mark í norsku deildinni í hálf leik. Það var Ferdrikstad sem skoraði gegn Lilleström. Bíðið víð. Garðar Jóhanns var að skora gullfallegt mark á 49. mín.
Eins og staðan er nú er það bara Fredrikstad sem getur náð Stabæk ef þessi úrslit halda sér.
Skulum bara vona það. Þá fáum við alla vega íslenskan deildarmeistara í konungsríkinu.
Bloggar | 5.10.2008 | 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það var bæði fallega og vel gert hjá mínum mönnum að berjast til síðasta bóðdropa og uppskera 3-2 sigur eftir að komið manni í rusl í fyrrihálfleik og lífshættulega háspennu í þeim seinni.
Skiptir náttúrlega mestu að geta brosað í leikslok yfir stigunum þremur.
En enn einu sinni verður maður að setja spurningarmerki Arbeloa sem á alla sök á fyrsta marki City. Og þó hann hafi lagt upp mark fyrir Torres þá eru mistök hans alltof mörg. Finnst að Benni ætti að láta Dossena fá fleiri tækifæri. Hann virkar meira traustvekjandi en Arbeloa sem kostaði okkur ófá stig í fyrra og sýnist lítið hafa bætt sig síðan þá.
![]() |
Magnaður sigur Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.10.2008 | 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Það er ekki bara að veislan sé búin. Við höfum ekki lengur efni á ýsu og soðnum kartöflum sem gáfu okkur ómældan kraft öldum saman auk lambakjötins á sunnudögum. Ýsan er orin alltof dýr svo nú verðum við bara að treysta á kartöflurnar og niðurgreidda lambakjötið. Þeir geta ekki selt það úr landi þar sem við erum búin að borga inn á það með niðurgreiðslunum.
![]() |
Veislan búin á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.10.2008 | 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dr. Richard Portes hefur greinilega komist að sömu niðurstöðu og flestir greinendur að þjóðnýting Glitnis var versta leið sem hægt var að finna þegar horft er til hagsmuna þjóðarinnar. Gjörningurinn setti hina bankana í ómæld vandræði og álit ríkisvaldsins og ekki síst Seðlabankastjóra, beið alvarlegan hnekki í útlöndum.
Sú hugsun verður sí nærgöngulli hvort styrt samband Seðlabankastjóra og aðaleiganda Glitnis hafi ráðið gjörðum þess fyrrnefnda sem síðan hafi sagt forsætisráðherra að halda kjafti og hlýða efnahagsráðgjafanum.
Eftir situr þjóðin og býr við enn verri lífskjör en hún hefði þurft hefði bara einhver önnur leið verið valin eða þá engin.
Spurningin fyrir almenning er bara sú hvort við eigum heldur að trúa uppgjafa stjórnmálamanninum og lögfræðingnum í Seðlabankanum eða viðskiptaprófessorum og fjármálagreinendum um heim allan?
![]() |
Fráleitt að Glitnir hefði orðið gjaldþrota" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.10.2008 | 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Veigar Páll var arkitektun að tveimur fyrstu mörkum Stabæk og skorðai sjálfur það þriðja. Hann lék ekki allan leikin því honum var skiptútaf í lokin fyrir Tommy Stenersen.
Stabæk er nánast orðið meistari. Alla vega með báðar klærnar á deildarmeistaratitlinum. En auðvitað gæti brotnað kló en það þarf hamfarir til að þeir missi titilinn. Markahlutfallið er þess eðlis.
![]() |
Stabæk með aðra hönd á titli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.10.2008 | 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stabæk er 2 - 0 yfir á heimavealli sínum gegn Ham Kam þar sem Veigar Páll var aarkitektinn að báðum mörkunum. Fyrst spilaði hann Alanzinio í gegn sem skorðai gull falleggt mark og 2 mínutum síðar splundraði hann vörn gestanna með sendingu inn í teiginn þar sem Nanskog fékk boltan að lokum og renndi honum í opið markið.
Og nú 5 mínútum fyrir leikslok skoraði Veigar beint úr aukaspyrnu. Staðan er því 3 - 0 fyrir Stabæk
Stabæk hefur 9 stiga forystu þegar 3 umfrðir eru eftir og er með langbesta markahlutfallið svo það þarf mikið til að Bærums liðið tapi af deildarmeistaratitlinum. Stabæk hefur góða möguleika á að vinna tvöfalt þetta árið þar sem þeir leika til úrlsita við Vålerenga um Noregsmeistaratitilinn.
Bloggar | 4.10.2008 | 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
![]() |
Guðmundur íhugaði að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.10.2008 | 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
-
stebbifr
-
adhdblogg
-
alla
-
adalsteinnjonsson
-
arogsid
-
pelli
-
kaffi
-
beggipopp
-
bjarnihardar
-
bokakaffid
-
gattin
-
disadora
-
fannarh
-
gislisig
-
gretaulfs
-
gretarro
-
jyderupdrottningin
-
gudrununa
-
gthg
-
hafsteinnvidar
-
heidistrand
-
hehau
-
helgigunnars
-
hermingi
-
drum
-
disdis
-
ingabaldurs
-
veland
-
jakobk
-
jonkjartansson
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonerr
-
kalli33
-
ktomm
-
loopman
-
st1300
-
7-an
-
palmig
-
krams
-
ragnarb
-
raggiraf
-
ragnar73
-
ridartfalls
-
sng
-
snorribetel
-
vefritid
-
thormar