Stormasamt á Svalbarðseyri

Það er miður skemmtilegt að heyra af illindum milli skólastjóra og foreldra barna í Valsárskóla vð Eyjafjörð.  Ekki það að það sé neitt nýtt að fréttir berist um róstur frá þessum fagra firði. Þannig hefur það verið allt frá landnámi þar nyrðra.  En þegar það gerist á árinu 2008 að kennsla sé felld niður í 60 barna skóla vegna vantrausts foreldra á skólastjóranum er eitthvað mikið að í þessu litla samfélagi.

Ég er mikill aðdáandi Bonanza þáttanna.  Þar er endirinn alltaf góður. Síðasta laugardag var tema þáttarins einmitt vandamál og vantraust á skólastjóranum í Virgenia City. Og auvitað leysti sáttasemjari vilta vestursins, Ben Cartwrigt, flækjuna með viturlegri ræðu á borgarafundi í skólanum.

Mín skoðun er sú að á litlum stað eins og Svalbarðseyri séu illindi eins og lýst er í Moggafréttinni tilþess eins að grafa undan annrs góðu mannlífi í litlu samfélagi.  Deilur um skóla og presta í litlum samfélögum er það versta sem fyrir getur komið. Flokkadrættir éta samfélagið innanfrá eins og hvert anað krabbamein.

Vona svo sannarlega að þorpsbúum í sameiningu takist að finna farsæla lausn á þessu erfiða máli. Ég þekki sjálfur hvernig deilur um skólastjóra og skóla getur eyðilagt margra ára gott skólastarf og engin tapar meira á slíku en nemendurnir.

Gangi sáttatiraunirnar illa mæli ég eindregið með að sveitarstjórnin fái Sjónvarpið til að gangast í að útvega Bonanza þáttinn góða og þannig að þorpsbúar geti fengið móralska aðstoð  frá Benna á Ponderosa. Hann kann sitt fag þegar kemur að uppeldi, bæði á börnum og fullorðnum uxum og hestum.


mbl.is Kennsla féll niður vegna vantrausts á skólastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvað er málið?  Af hverju eru foreldrar svona ósáttir við skólastjórann?

ætti það ekki að fylgja fréttinni,  svona fyrir þá sem hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast þarna?.

"Deilur hafa staðið undanfarin misseri á milli skólastjórans og hluta foreldra barna í skólanum." .. Deilur um hvað?,  Var skólastjórinn of harður við börnin,  eða of linur?,  vildi hann að krakkarnir kæmu með nesti í skólann eða bannaði hann gosdrykki ?..  

Spyr sá sem ekki veit neitt um þetta mál.

Jóhannes H. Laxdal (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 13:44

2 Smámynd: Dunni

Nákvæmlega.  Hvað er málið?  Fyrst þarf náttúrlega að greina það og síðan leysa.  En það er heimskulegt að láta ekki ágreiningsefnið fylgja með fréttinni fyrst á annað borð var ákveðið að skrifa frétt um málið.

Kanski nsýst málið um hvort börnin eigi að kaupa súkkulaði af Nóa Siríus eða af Helga í Góu.  Hver veit??

Dunni, 5.12.2008 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband