Spurnigarmerkið Björgvin.

Björgvin bankamálaráðaherra setur spurnigamerki við yfirtökuna á Glitni og upplýsir fyrst nú að hann sem bankamálaráðherra hafi ekki haft hugmynd um aðgerðina fyrr en búið var að taka ákvörðun um hana í Seðlabankanum.

Hvernig í andskotanum stendur á því að ráðherrann  slær ekki í borðið og stoppar aðgerðir Seðlabankastjórans.  Svo ropar hann því út úr sér að er það sé erfitt að meta hvort aðgerðin hafi verið rétt eða  ekki.  Það er hverjum manni ljóst að aðgerðin var kolröng.  Viðbrögði seðlabankanna víða um heim staðfesta það svo ekki verður um villst.   Með þjóðnýtingunni var skrúfað fyrir allt traust á íslenska Seðlabankanum erlendis og íslensk stjórnvöldu hafa verið álitin kjánaflokkur upp frá því.

Það er deginum ljósara að ráðherrar Samfylkingarinnar eru í hlutverki gungunnar í ríkistjórninni.  Þeir láta Davíð og Geir ganga yfir sig á skítugum skónum og hlæja að þeim á laun.  Ráðherragengið, að undanskilinni Jóhönnu, er á góðri leið með að gera VG að öflugastas stjórnmálaafli landsins.  Hvar er metnaður Samfylkingarinnar? Kanski í vasanum hjá Geir?


mbl.is Björgvin: Spurningarmerki við Glitnisatburðarás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Ég er alveg sammála þér.

Samfylkingin hefur bara eitt á dagskrá og það er ESB og koste det det koste vil  Svo finnst Björgvin og Össur svo gaman að vera ráðherrar og að vera í sviðsljósinu.
Jóhanna er eini ráðherrann sem stendur vaktinni.

Heidi Strand, 8.12.2008 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband