Færsluflokkur: Bloggar

Dátar - Flowers - Hljómar - Ævintýri og Trúbrot

Verð að viðurkenna að ég kemst alltaf í svo ótúlega andskoti gott skap þegar ég hlusta á gömlu plöturnar mínar. Og hvað er betra en að hlusta á íslenska safnið sitt í byrjun hvítasunnu.

 Sérstaklega er ég elskur að Flowers plötunni og Dáta plötunum. Mér er til efs að á Íslandi hafi nokkurntíma verið betri rokksveitir en Dátar og Flowers.  Ég er ekkert að gleyma Hljómunum, fyrsta íslenska Bítlabandinu.   Í mínum huga verða þeir að sætta sig við vera á eftir Dátum og Flowers.

Eftir langa yfirlegu yfir plötum þessara sveita verð ég að viðurkenna að Dátarnir voru hreint frábær hljómsveit. Þeir voru allt öðruvísi band en Hljómarnir. Dátar voru ekta mods hljómsveit sem flutti kraftmikið rokk að hætti Small Faces, Easy Beats, Pretty Things og The Who meðan Hljómarnir covereðu Bítlana frá 1963 - 1964.  Þeir fylgdust einfaldlega ekki með hvernig rokkið þróaðist á Bretlandseyjum á 7. áratugnum. Persónuletga finnst mér besta tímabil Hljómanna þegar Pétur Östlun sat á bak við trommurnar. Þá var eitthvað að gerast og Umbarumbamba er gott vitni um það.  Tvær fyrstu "stóru plötur" Keflavíkursveitarinnar eru ósköp áheyrilegar meðan maður vaskar upp eða fyrir miðaldra konur í popplínkápum steðjadni í Bónus.  En sem framsækin verk eru þær báðar hand ónýtar.   

Dátar höfðu einn allra besta lagasmið landsins innan sinna vébanda. Það er náttúrlega Rúnar heitinn Gunnarsson sem samdi mörg frábær lög á sínum stutta ferli. En þeir höfðu ekki jafn snjöllum gítarleikara á að skipa og Hljómarinir.  En guð minn góður hvað þeir voru miklu kröftugri og skemmtilegri.

Flowers var síðan afsprengi Dátanna eftir að Karl Sighvatsson yfirgaf  þá til að stofna Blómin með Jonna  bróður sínum sem kom úr Mods. Gunnar Jöklull, sem hefði átt að vera trommuleikari stórgrúppunnar Yes en hann sagði nei við því, kom úr Tempo og   Add Sigurbjörns, einn skemmtilegast gítaraleikari landsins og Jonni R. sem komu úr Toxic.  Flowers héldu áfram þar sem Dátar höfðu hætt.  Framsækið og þungt rokk var aðalsmerkið og hljómsveitin varð fljótt yfirburðahljómsveit í túlkun á rokkinu þrátt fyrir meiri vinsældir Hljóma. Menn þurftu að melta Flowers en gátu gleypt hljómum með húð og hári.

Breytingar voru gerðar á Flowers í árslok 1968. Þá hættu Jonnarnir, Jónas R. og Sigurjón Sighvats. Björgvin Halldórsson tók við söngnum og Jóhann Kristinsson tók við bassanum. 

Ég veit eiginlega ekki hað ég á að segja um þessa breytingu.  Samleikur Sigurjóns og Gunnars Jökuls var svo einstakur að maður saknaði hans.  Flowers platan er gott vitni þess. Ég þreytist seint á að spila hana fyrir vini og kunningja.  Einn þeirra er með betri jasstrommuleikurum í Noregi. Sá segir að samleikur tromma og bassa á 4 laga plötunni sé með því besta sem hann hefur heyrt.

En eftir að Jonnarnir fóru varð sveitin þéttar og rythmiskari. Söngurinn batnaði og krafturinn jókst. Þeir sem heyrðu og sáu Flowers leika Sverðdansinn, eftir Katsjaturian, gleyma því seint eða aldrei.

Þá er komið að Ævintýrinu og Trúbrot sem urðu til eftir að Hljómar og Flowers sameinuðust í fyrstu súpergrúppu Íslands. 

Til að gera langa sögu stutta þá hélt Ævintýri áfram á Hljómalínunni og bætti við örlitlu meira rokki meðan Trúbrot steig skrefinu framar en Flowers í þróaðri rokktónlist. Ævintýri gaf út 2 litlar plötur sem báðar eru frekar skemmtilegar þó ólíkar séu. Fyrri platan er fín partíplata meðan sú seinni var hörku þungarokk að hætti Deep Purple.  Trúbrot gaf út nokkrar Lp og eru þær vægast sagt mjög misjafnar að gæðum.  

Fyrsta plata þeirra innihélt allskonar samtýning og hefði átt að heita "Afgangar" eins og eitt laga hennar. Þar bar hæst tónverkið "Frelsarinn" sem er útsetning Karls Jóhanns á hluta Pílagrímakór Wagners. Þótti stórbrotið á sínum tíma og var bannað í Ríkisútvarpinu þar sem hljómsveitin var talin vera að nauðga klassísku tónverki þýska meistarans.  Hitt var "Þú skalt mig fá" flott útsetning á Bítlalaginu "Things We Said Today"   Ef söngur Rúna Júl hefði verið jafn góður og bassaleikur hans í þessu lagi hefði það orðið heimsfrægt með Trúbrot.

Eina stórvirki Trúbrots er meistaraverkið Lifun. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það. Það er einfaldlega ein kraftmesta og besta rokkplata Norðurlanda frá síðustu öld.

 Tatarar eru sveit sem maður getur ekki sleppt þegar talað er um bestu hljómsveitir Íslands á 6. og 7. áratug síðustu aldar. Hvert mannsbarn sem komið er yfir fertugt man "Dimmar Rósir" llíða úr barka Stebba. Steini Hauks, Árni Blandon voru  hörkufínir tónlistarmenn og Töturunum getum við alveg tylla í hvaða sæti sem er, eftir smekk, á Topp4

GÞÖ

http://orangetours.no/

 

 

 

   


Enn af Kobbasögu og Óla F. Magg.

Bara til að árétta það þá er ég hand viss um að Jakop F. Magnússon er ekkert síður fær um starf miðborgarstjóra en aðrir hugsanlegir umsækjendur.  Og jú. Borgarstjóri hélt sér innan reglugerða við ráðninguna.

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hélt sér langt fyrir utan siðferðiskennd almennra borgara við ráðningu vinar síns.  Það er það sem kemur betur og betur í ljós í hvert skipti sem hann og aðstoðarmaður hans, Ólöf Guðný, opna á sér munninn til að réttlæta ráðninguna.

Ólafur auglýsti ekki starfið og gaf því ekki öðrum kost á að sækja um það.  Hann valdi vinn sinn og greiðir honum hæstu laun sem borgin getur greitt fyrir starfið. Það lítur út fyrir að ráðningin hafi verið leynimakk milli Ólafs og Vilhjálms Þ. fyrrverandi og væntanles borgarstjóra án vitundar annara meirihlutafulltrúa.

Hvernig eigum við að geta tekið þessum vinnubrögðum sem trúverðugum þegar þau endurspegla augljósa siðblindu borgarstjórans. Aumkunarverð tilraun hans til að réttlæta ráðninguna á sjónvarpstöðvunum í gær misheppnaðist fullkomlega. Þar hann rak í vörðurnar og bullaði eða reyndi að grípa fram í fyrir spyrjenda í rökleysukrísu sinni.  Og nú sigar embættismönnum sínum til að réttlæta gjörninginn.  

Eftir því sem lengra líður á borgarstjóraferil Ólafs F. verður sú mynd sem Spaugstofan dró upp af honum raunsannari með hverjum deginum.


Jákvætt

Það hefur svo sem heyrst áður að Norðurlöndin ætli að fara að standa frekare saman í menningarmálunum en áður. M.a. sjónvarpsmálum. Það samstarf var slegið af á sínum tíma vegna þess að Norðmönnum þótti of dýrt að hafa Íslendinga með í þeim pakka.  Það var reyndar áður en Noregur auðgaðist á olíunni.

Nú virðist aftur vera komið líf í umræðuna um norræna menningarsamvinnu og það er jákvætt.  Það er engin vafi á því að sameiginlegt átak í menningasrmálum grerir Norðurlöndin og baltísku löndin mun sýnilegri og þar með áhugaverðari í augum heimsbyggðarinnar. 

 Ég ætla samt að vona að samvinnan verði á fleiri sviðum en bara tölvuleikjaframleiðslu.  En það er gaman að geta þess að einn av vinsælli tölvuleikjum á markaðnum í dag er ættaður frá Íslandi. Norsku fyrirtæki stóð til boða að framleiða leikinn en þar sem það var í fjárhagsvandræðum hröktust hugmyndasmiðirnir til Íslands þar sem þeri fengu fjármagn til að koma leiknum á koppinn. Engin sem að verkefninu kom sér eftir þeirri ákvörðun

 Það sem mér, búandi í Noregi, þykir verst er hvað fáar íslenskar kvikmyndir eru sýndar í sjónvarpinu hér.  Reyndar hafa Hrafninn flýgur og Í skugga hrafnsins fengið mikið pláss á TV1000 Nordic en þær myndir eru sennilega ekki bestu sýninshornin af íslenskri kvikmyndagerð.  Alla vega falla þær vinnufélögum mínum lítið í geð.

En  það er góðs viti  að nú á að gera stórátak í að kynna norræna menningu og maður getur bara vonað að það gangi betur nú en áður þar sem nú eru það menningar, viðskipta og atvinnuráðuneyti landanna sem sameinast í átakinu. Það ætti því ekki að standa á fjármagni til átaksins.

Bókmenntir, tónlist, myndlist og kvikmyndagerð ásamt sjónvarpi eru listgreinar sem við getum jafn vel og aðrar menningarþjóðir.  Við þurfum bara að sýna heiminum það.

 

  


mbl.is Vilja auka norræna menningarsamvinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stripp areobic

Stripp aerobic er æði sem gagntekið hefur konur í Noregi og Svíþjóð síðasta árið.  Konurnar fara í stríðum straumi í æfingastöðvarnar og taka á því undir taktfastri tónlist.  Og það er engin palla leikfimi sem þær stunda heldur hreinn og klár súludans. Þær eru semsagt að immitera nektardansstúlkurnar vitandi það að þær þurfa að hafa krafta í kögglum og vöðvana í lagi. Þegar í stúdíóið er komið hefst upphitunin með nokkuð svo hefðbundnum upphitunar æfingu. Síðan er talið í og konurnar fylla salinn með nautnafullum hreyfingum og nota gjarnan stóla eða hverjar aðra sem súlur.  Það eru föstudags kvöldin sem eru vinsælustu tímarnir hjá konunum í stripp-aerobicinu. Og af hverju ætli það sé? Jú þeim finnst fínt að ljúka vinnuvikunni í æfingasalnum þar sem þær fá púlsinn upp og svitann út í skemmtilegum æfingum sem bæði eru nytsamar og nautnalegar.   Ath. Kærasti Victoriu Svíaprinsessu  rekur eina af æfingastöðvunum sem býður upp á stripp-aerobic.

Ólafur borgarstjóri

Enn einu sinni skítur borgarstjórinn í skóinn sin.

Ég efast ekki eina mínútu um að Ólafur F. Magnússon er góður maður og vill vel. En það er bara ekki nóg til að stjórna einni höfuðborg.

Nú síðast er það ráðning Jakobs Magnússonara sem þvælist fyrir honum.  Mér dettur ekki í hug að gagnrýna borgarstjórann fyrir ráðningu skemmtikraftsins.  Jakob hefur marg sannað að hann er bæði frjor og atorkusamur og getur örugglega nýst borginni í því sem honum var falið. Það er sam alveg sjálfsagt að fólk hafi mismunandi skoðanir á ráðningunni. 

Langhundurinn sem Ólafur borgarstjóri sendi frá sér í dag til að til að réttlæta ráðninguna er ljóslifandi dæmi um að Ólafur hefur enga yfirsýn yfir starf sitt. Flestir vita að borgarstjórinn fór upp á punkt og prik eftir lögum og reglum enda dettur helf ég engum í hug að hann myndi fara einhverja fjallabaksleið. Það eru fyrst og fremst laun tónlistarmannsins sem mér finnst eðlilegt að séu endurskoðuð. 

Auðvitað er ráðningin pólitísk þar sem skólabræðurnir úr MH eru báðir flokkslausir. En það er bara orðin hefð fyrir slíkum ráðningum á Íslandi.  Við getum bara horft á Seðlabankann og sendiherrana. En þetta er í góðu lagi í lýðveldinu.  En samviskulaus er þessi vinavæðing.


mbl.is „Ráðning í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur vinur kynferðisglæpamanna

Þetta finnst mér ómerkilegur úrskurður hjá Hæstarétti. 

Enn á ný tekur Hæstiréttur Íslands upp hanskann fyrir kynferðisglæpamann.  Fórnarlöbin eru látin gjalda þess að  héraðsdómurinn vann ekki vinnuna sína.  Sauðsháttur hans kemur í veg fyrir að árásarmaðurinn sleppur við annars alltof stuttan fangelsis dóm og þarf aðeins að greiða fórnarlömbum sínum sitt hvor mánaðarlaunin.  

Þessi dómur er íslensku réttarfarai til skammar og þjoðinni til skaparaunar.  


mbl.is Hæstiréttur skilorðsbindur refsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

106 milljarðar jarðarbúa!!!!

Hlustaði á merkilegt útvarpserindi um mannkynið í bílnum á leið til vinnu á föstudaginn.  Þar kom fram að frá upphafi mannabyggðar á Jörðinni sé mannkynið um 106 milljarðar.   Þar sem Jörðin hýsir nú um 6 milljarða manna  er það ekki flókinn reikningur að finna út að á undan okkar kynslóð hafa 100 milljarðar manna haft bústað sinn á hnettinum okkar. Okkur þykir víða þröngt á þingi nú á þessari plánetu.  Tókíó og Indland er góð dæmi um svæði þar sem hver einstaklingur hefur ekki úr mörgum fermetrum að spila.  Þar er aðra sögu að segja en frá Íslandi og Noregi þar sem einstaklingar hafa nánast ótakmarkað pláss fyrir sig og sína. En það getur verið bæði gaman og fróðlegt að velta fyrir sér hvernig þetta sé þarna uppi á himnum þar sem um 100 milljaðrar fólks röltir um í guðsríki. Þ.e.a.s ef flestum bærðra okkar hefur verið hleypt þar inn.  Við sem lásum, Bræðurna ljónshjarta, á sínum tíma munum vel að þar var vistinni lýst bjartri og góðri og ekki minnst á að skortur væri á himnarými þar.  Það gæti verið vænlegt verkefni fyrir heimspekinga nútímans að velta fyrir sér þessari þróun og reyna að finna út hvað orðið er um þessa 100 milljarða manna sem ekki eru lengur á meðal vor. Sem betur fer því þá fækkaði fermetrunum á Íslandi og Noregi sem við leikum okkur á í dag.   

Gott hjá Þórunni

Þar kom að því að maður fékk jákvæðar fréttir af ráðherrum Samfylkingarinnar. Ummæli Þórunnar eru merki um að það er smá vottur eftir að hugsjóninni "Fagra Ísland" innan ráðherraliðs flokksins. 
mbl.is Ráðherra styður ekki eignarnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymdi að segja sjúklingnum af krabbameininu

Það dúkka alltaf upp hin furðulegustu tilfelli í norska heilbrigðiskerfinu. Í síðustu viku voru birtar upptökur frá sjúkraflutningamönnunum sem skildu lífshættulega slasaðan Sómala eftir í almenningsgarði í Ósló í sl. sumar. Sjúkraflutningamennirnir voru sakaðir um rasisma en sóru og sárt við lögðu að sú hefði alls ekki verið ástæða þess að þeir fluttu ekki mannin undir læknishendur.

 

TV2 komst yfir upptökur af samtölum mannanna í sjúkrabílnum og Ullevål spítalan. Tveimur dögum áður en upptökurnar voru spilaðar í fréttatíma sjónvarpstöðvarinnar skrifaði annar mannanna opið bréf í Aftenposten þar sem hann bað Sómalan og fjölskyldu hans að hætta við málsóknina gegn þeim þar sem hún væri á misskilningi byggð.

 

Upptökurnar eru með þeim hætti að ómögulegt er að skilja þær öðruvísi en sem hreina kynþáttafordóma og mannvonsku.  Engin leggur nú trúnað á hið opna bréf sjúkraflutningamannsins og að sjálfsögðu heldur fjölskyldan málsókninni til streitu.

 

Þá bárust fréttir að því í vikunni að kona nokkur sem lögð var inn á Austfold sjúkrahúsið greindist með krabbamein en læknarnir gleymdu að láta hana vita af meinsemdinni.  Sjö mánuðum síðar var konan öll og komin undir græna torfu.

 

Að sjálfsögðu hafa aðstandendur konunnar kært læknana og sjúkrahúsið til heilbrigðisnefdarinnar og nú bíður fólk spent eftir hver eftrirkeikurinnverður fyrir sjúkrahúsið og læknana.  Þetta er nefnilega í annað sinn sem þetta hendir á þessu sama sjúkrahúsi. Í fyrra var það 60 ára gamall karlmaður sem hafði greinst með krabba en það bæði gleymdist að segja honum af því og hann var heldur ekki kvaddur til eftirmeðferðar.  Hann var heppinn þar sem fjölskylda hans áttaði sig á að ekki var allt med felldu og ók honum á sjúkrahúsið þar sem hann var skorinn upp í hvelli og lífi hans bjargað á síðustu metrunum.

 

Atvinnunöldrari og kjaftasögur

Það er oft merkilegt að fylgjast með fréttum úr íslenskum stjórnmálum þegar maður situr handan hafsins.  Er einhvern veginn auðveldara að greina moðið frá matnum úr fjarlægðinni.

Mér finnst mjög eðlilegt að atvinnunöldrarinn, Steingrímur Sigfússon, spyrji Geir Haarde um samskipti Seðlabankans og ríkistjórnarinnar. Ég held ekki að kjaftasögur hafi rekið Steingrím til spurninga sinna heldur misvísandi skilaboð frá ráðherranum og bankastjóranum.  En ég verð að viðurkenna að svar ráðherrans skýtur mjög skökku við fyrri yfirlýsingar hans og Seðlabankastjóra.

Geir hefur sagt að auðvitað muni ríkið hlaupa undir bagga með bönkunum í þeirri kreppu sem nú er brostin á í hinum alþjóðlega fjármálaheimi.  Davíð hefur hinsvegar sagt að ekki komi til mála að rétta íslensku bönkunum hjálparhönd. 

Þegar forsætisráðherra og Seðlabankastjórinn tala út og suður verður málflutningur ráðherrans ótrúverðugur þegar hann segir samskipti þeirra í millum fín.

Það sem ég velti fyrir mér þessar vikurnar er hvaðan er þjóðarskútunni stýrt. Er það í stjórnarráðinu eða frá Seðlabankanum.  Það er alveg ljóst að Ingibjörg hefur lítil sem engin áhrif nema bara að segja við tilkynningunum sem Geir flytur henni frá Kalkofnsveginum.

 


mbl.is Fín samskipti við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband