Færsluflokkur: Bloggar

Liverpool á Ullevål í kvöld.

Liverpool leikur æfingaleik við Vålerenga á Ullevål vellinum í Ósló í kvöld. Þetta er til ómældrar gleði fyrir hina fjölmörgu norsku stuðningsmenn LFC enda er löngu uppselt á leikinn og rúmlega það því eftir því sem mér skilst verða um 27000 áhorfendur á vellinum sem venjulega rúmar aðeins 24800 "tilskuere"

En það er ekki bara að stuðningsmennirnir flykkist á völlinn í kvöld.  Þeir eru líka með söfnun í gangi til að vera með í því að kaupa Ameríkanana út úr félaginu og gera LFC aftur að grasrótarfótboltafélagi sem rekið verður samkvæmt lögmálum makaðarins.  Meðlimir í LFC-klúbbnum í Noregi geta keypt "hlutabréf" upp á miníum 50 þúsund nkr, milli 750 og 800 þusund ísl.kr.  Salan gegnur vel og sumir láta sér ekki eitt bréf nægja.

Það verður ugglaust mikil upplifun fyrir marga á vellinum í kvöld því nú eru 6 ár síðan Liverpool lék síðast í Noregi.  Þá voru vinirnir Houllier og Fowler enn hjá liðinu.  


Á ofsaakstri í nýju vinnuna

Náungi á þrítugsaldri var tekinn á 131km hraða á vegi þar sem aðeins eru leyfilegt að þenja kerruna upp í 80 km/t.  Þetta gerðist í Lofoten í Noregi og væri varla í frásögur færandi nema vegna þess að maðurinn var á leiðinni á sínum fyrasta degi í nýtt starf.  Nefnilega sem lögreglumaður. 

 Hann fékk því fylgd væntanlegra starfsbræðra sinna á lögreglustöðina sem tóku af honum skírslu og hirtu síðan ökuskírteini hans og geyma það í 6 mánuði. Þá verður hann að inna haf hendi 36 tíma í samfélagsþjónustu áður en hann getur hafið störf sem lögregluþjónn.

 Lögreglustjórinn í Mið-Hálogalögregluumdæmi segir að þetta sé sérstakur dómur og hefði verið á annan veg ef ekki væri um lögreglumann að ræða.  Við, ég og þú, hefðum nefnilega fengið svimandi háa sekt, ökuleyfissviftingu í 8 mánuði og 50 daga fangelsi fyrir sama brot. 


Ferðamálaráðherrann!!

Það er mikið suðað yfir ferðalögum Ingibjargar Sólrúnar.  Hún viðrðist vera æði mikið á ferð og flugi og það er sjálfsagt satt og rétt.  En hvort hún ferðast meira eða minna en aðriri utanríkisráðherrar lýðveldisins veit ég ekkert um.

En fyrst hún liggur í ferðalögum er það bara jákvætt að hún skuli leggja sér ferð á hendur til frænda okkar í Kanada.  Þeir hafa sjálfsagt orðið glaðir við enda þurfa þeir ekki að búa við stjórnsemi hennar og yfirlýsingagleði árið út og inn.  Ingibjörg hefur gert margt vitlausara en að fare í þessa heimsókn.


mbl.is Ingibjörg Sólrún heimsækir Mountain
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennarar

Það er ánægjulegt að lesa að það skuli ekki vanta nema um 40 kennara í Reykjavík svona rétt áður en skólahald hefst í haust.

En af hverju skildi það nú vera.  Sennilega er það vegna þess að nú er erfitt framundan í atvinnumálum á hinum frjálsa markaði.  Þá koma kennararnir til baka í skólana þar sem þeir hafa trygga atvinnu og einhverja afkomu. 

Um leið og eftirspurn eftir vinnuafli verður meiri aftur tæmast skólarnir af góðum kennurum sem fá helmingi hærri laun.  Enda er það náttúrulega miklu ábyrgðarmeira starf að stafla kössum á lager en að leggja grunnin að vel menntaðri íslenskri þjóð.


Ef allir væru eins og Hermann ....

Einhvern veginn er ég ekkert hræddur um að Hremann Hreiðarsson missi sína stöðu liði Portsmouth.  Hemmi er einn traustast maður liðsins og sá sem allatf gefur sig 105%, minnst, í hverjum leik.

Gleymi aldrei viðtalinu við Egil, Drillo, Olsen eftir að hann var rekinn frá Wimbledon á sínum tíma.  Auðvitað vildu norsku fjölmiðlarnir fá skýringu þjálfarans á óförunum.  Svör Drillo vöru einföld og auðskilin eins og alltaf þegar hann svarar spurningu. 

 "Englendigarnir skildu ekki út á hvað fótbolti gekk. Þeir voru agalausir að leika sér og lögðu sig ekki fram.  Ef allir leikmennirnir hefðu haft sama viðhorf og Hermann Hreiðarsson hefðum við verið í efri hluta deildarinnar en liðið ekki fallið.  Hermansson mjög góður knattspyrnumaður og einstakur maður að vinna með"  


mbl.is Shorey ógnar stöðu Hermanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hart í ári í bandaríska bílabransanum

Það er svo sem vitað að gömlu bílarisarnir í henni Ameríku, GM og Ford hafa brist í bökkum í langa hríð.  Eitthvað leit þó út fyrir að hagur þeirra væri að vænkast á síðustu árum. En nú koma SJOKK-tölurnar frá GM.  Gamla Chevrolett veldið virðist komið að fótum fram eftir að hafa tapað um 1200 milljörðum á aðeins 13 vikum á vormánuðum í ár.

GM samdi við starfsfólk sitt um 20% launaskerðingu sem segir þó lítið þegar salan á bílum þeirra hefur dregist saman um 26% að meðaltali.  Sala á jeppum og pallbílum hefur dregist enn meira saman eða um 35%.  Nú rær stærsti bílarisi heimsins lífróður til að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti.

Ástandið hjá Ford og Chrysler er ekki alveg jafn bágborið en engan vegin eins og forráðamenn fyrirtækjanna höfðu vonast eftir. Salan hefur dregist saman um 15% hjá þeim en Ford menn geta þó brosað út í annað því salan á ameríska Ford Focus hefur aukist um 16%.

 Japönsku bílarisarnir hafa ekki farið varhluta af veseninu í landi Bush þangað sem þær sækja bróðurpartinn af tekjum sínum ( 70%). Salan hjá Toyota hefur dregist saman um 12% í USA. Reyndar hefur salan á Nissan aukist um 8% en engu að síður lagði Nissan fram ársfjórðungsskýrslu sína á dögunum sem sýndi 43% minni tekjur en á sáma tíma fyrir ári.

 

 


Aleksander Solzhenitsyn

Þða fer ekki framhjá heimsbyggðinni þegar stórmenni eins og Aleksander Solzhenitsyn falla frá.

Þessi fyrrum vísindamaður og herforingi í Sovétríkjunum var vinsæll með afbrigðum í landi sínu þar til hann sagði sannleikann um gúlagið.  Hann fékk svo sannarlega að kynnast því af eigin reynslu. 

Heimurinn stóð vaktina með Solzhenitsyn og eftir þunga pressu frá Vestur-Evrópu var rithöfundurinn látinn og rekinn úr landi því sem ekki gat hýst þá er höfðu mannréttindi, sannleika og kærleika að leiðarljósi í lífi í sínu.

Blessuð sé minning Aleksander Solzhenitsyn

 


Rosenborgarar steinrotaðir í Tromsö

Það gerist orðið æ oftar að norska stórliðið Rosenborg tapar leikjum í norsku deildinni. Og nú lítur út fyrir að það líði 2 ár í röð án þess að liðið verði norskur meistari. Þegar Vålerenga tók titilinn hafði RBK unnið 13 ár í röð. Nú er öldin önnur og sýnir að það er ekki nóg að eiga 25 - 30 milljarða undir koddanum til að vinna norsku deildina.

Á velmegunarárunum, undir stórn Nils Arne Eggen, voru ævinlega 8 heimamenn frá Þrándheimi í liðinu + einn Íslendingur. Í dag kemur bróðurpartur leikmannanna frá afríku eða einhverju öðru útlandi.  Í dag voru það 4 Norðmenn sem hófu leik fyrir RBK, þar af 2 ættaðir frá Þrándheimi.

Í kvöld steinlágu gömlu meistararnir fyrir Tromsö sem vann 4 - 0 og mér skillst að komið sé vel á annan áratug síðan RBK hefur tapað með 4 marka mun í Noregi.

 Annars er það gleðiefni að Stabæk er aftur komið á toppinn. Þrátt fyrir að Veigar Páll hafi ekki skorað fyrir lið sitt í deildinni síðan í maí er hann ötrúlega miklivægur í öllum sóknaraðgerðum liðsins.  Ég held að það líði varla sá leikur þar sem Stabæk skorar að hann eigi ekki amk eina stoðsendungu.  Hann var óheppinn í kvöld.  Fékk 3 góð marktækifæri sem  öll voru frábærlega vel varain af markmanni Bodö.

Annars er hreint ótrúlega andskoti skemmtilegt að fylgjast með okkar mönnum í norska boltanum. Held ég geti fullyrt að þeir séu alir að gera það mjög gott hjá sínum liðum.  Það hefur aldeilis ekki alltaf verið svoleiðis þau 10 ár sem ég hef fylgst með norksa boltanum   


Rakfiskurinn og dauðinn

Matarvenjur okkar Íslendinga og Norðmanna koma mörgum spankst fyrir sjónir.  Ekki eru það allir sem skilja af hverju við leggjum okkur til munns kæsta skötu, hákarl eða harðfisk. Eins er með Norðmenn.  Ekki allir skilja af hverju þeir gæða sér á rakfiski til hátíðarbrigða. Það fékk Norðmaðurinn, Torodd Fuglesteg, að reyna í Skotlandi á dögunum. 

Hann hafði komist yfir fötu af rakfiski sem vinur hans hafði fært honum er hann kom í heimsókn.  Ekki át Þóroddur rakfiskinn strax heldur geymdi hann þar til um daginn að hann ætlaði að gæða sér á gómsætum fiskinum. Hann fór því í geymsluna og sótti fötuna með fiskinum.  Er hann kom upp í íbúð sína, sem er á 4. hæð í blokk í bænum Paisley í Skotlandi, opnaði fötuna og gaus upp megn stækja sem ekki hélt sér eingöngu innandyra hjá Norðmanninum heldur dreifði sér um allan stigaganginn. 

En það gerði Norðmaðurinn sér enga grein fyrir. Hann verður síðan var við að það er bankað ofur varlega á dyrnar hjá honum.  Hann hélt að þar væru á ferð rukkarar frá BBC sem ætluðu að krefja hann um afnotagjaldið sem hann ekki hafði greitt.  Því fór hann ekkert til dyra. 

Nokkru síðar heyrir hann að það er bankað öllu fastara en hann lét sér fátt um finnast enda byrjaður að borða rakfiskinn. Áfram héldu bönkin á hurðinni og nú öllu fastari en fyrr.  Að lokum lét hurðin undan og inn komu lögregluþjónar með gasgrímu fyrir virtum sínum.  Og nágranninn læddist inn á eftir þeim. Þegar Þóroddur spurði hvað þeir vildu sögðust lagana verðir vera komnir hingað til að ná í lík.  Kvartað hafði verið undan nálykt úr íbúðinni.   

Norðmaðurinn sagði að ekkert lík væri í íbúðinni hjá sér. Löggan lét sér ekki segjast og leitaði um alla íbúð án þess að finna nokkurt lík.  En þegar þeir opnuðu skjóluna með fiskinum varð þeim ljóst hvernig í pottinn var búið.  Þeim lá við uppköstum. 

Það sem í raun gerðist var að nágranninn, sem ekki hafði séð Torodd í meira en mánuð þar sem vinnutími þeirra var ekki sá sami í sólahringnum hélt að Norðmaðurinn lægi dauður í íbúðinni og hefði legið þar lengi.  Hann var þess fullviss þegar Torodd opnaði ekki dyrnar er hann bankaði og því hringdi hann á lögregluna til að koma líkinu í réttar hendur. 

Nágrannin var að vonum ánægður yfir að Norðmaðurinn var á lífi og enn ánægðari var hann þegar Torodd fullvissaði hann um að hann myndi aldrei aftur borða rakfisk meðan hann dveldi í Skotlandi.


Ónýt ríkisstjórn og fylgið rýkur..

Fylgishrun ríkistjórnarinnar þarf engum að  koma á óvart. Þegar farið er yfir þessa mánuði sem stjórnin hefur setið í stólunum er engu líkara ráðherrarnir hafi misskilið stólana sína og talið þá hægindastóla en ekki ráðherrastóla þaðan sem kjósendur vænta bæði frumkvæðis og aðgerða þjóðinni til hagsbóta.

Kíkjum hér á lítinn á lítið brot úr stjórnarsáttmálanum: "Eitt brýnasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar er að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu í þágu heimila og atvinnulífs. Markmið hagstjórnarinnar er að tryggja lága verðbólgu, lágt vaxtastig, betra jafnvægi í utanríkisviðskiptum, jafnan og öflugan hagvöxt og áframhaldandi trausta stöðu ríkissjóðs". 

Nú spyr maður sjálfan sig hvernig til hafi tekist með brýnasta verkefnið. Að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu.  Það hefur algerlega brugðist og nú flæðir gjaldþrotaholskefla yfir fyrirtækin og fjöldi fólks missir atvinnuna.

Þá eru það markmið hagstjórnarinnar.  Lág verðbólga og lágt vaxtastig.  Á Íslandi er verðbólgan hærri en í nokkru öðru af nágrannaríkjunum.  Vextirnir eru þeir hæstu í heimi samkvæmt Guðna Ágústssyni og Sverri Stormskjer.  

Þegar litið er á frammistöðu stjórnarinnar liggur það nokkuð ljóst fyrir að hún hefur ekki enn hafið störf og kjósendur þegar farnir að missa traust það sem stjórnin fékk á hveitibrauðsdögum sínum.

Örvinglun kjósenda er því ekkert undarleg.  Þeir sjá að leiðtogar stjórnarflokkanna eru ekki starfi sínu vaxnir. Geir og Ingibjörg gjörsamlega taktlaus og tala út og suður.  Stjórnarandstöðuliðið er því miður ekkert betra. Guðni Ágústsson eins og hann opinberaði sig hjá Stormskjerinu, Guðjón Arnar flokkaflakkari og tækifærissinni sem sjaldan stendur við fullyrðingar sínar og svo hefur komið í ljós að Steingrímur er lítið annað en atvinnunöldrari í þinginu. 

Það er eiginlega kominn tími til að stjórnmálaflokkarinir fari nú að taka til í görðum sínum og hleypa yngra fólki með nýjar hugmyndir að.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband