Mogginn í hendur útlendinga

Ekki hugnast mér að því að útlendingar eignist Moggann.   Reynsla Norðmanna af því að útlendigar eignist fjölmiðlana er ekki góð og ég hef enga trú að að reynsaln verði neitt betri á Íslandi.

Mogginn er ríkisfjölmiðill í dag nokkuð sem hlýtur að vera eitur í beinum þeirra sem stofnuðu blaðið á sínum tíma.  En svona er nú komið erfingjunum var ekki treystandi fyrir blaðinu og nú er það meira á hausnum en flest önnur fyrirtæki þjóðarinnar.  Skuldirnar eru slíkar að ekki er hægt að kaupa blaðið án þess að milljarðar skulda verði felldar niður.  Þar með er blaðið komið á framfæri skattgreiðenda.

Sennilega væri best að ríkið breytti skuldunum í hlutabréf og ætti blaðið í félagi við Vilhjálms hópinn. Þá væru menn öryggir um að Morgunblaðið yrði í eigu almenningshlutafélags og þannig er hægt að koma í veg fyrir gírugir útrásarvíkingar eignist þrotabúið á brunaútsölu.

Mogginn á að vera íslenskur. Svo einfalt er það. 


mbl.is Cosser ræðir við Fréttablaðsmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Vona að svo verði....enga útlendinga eða 365 miðla..

Halldór Jóhannsson, 22.2.2009 kl. 19:19

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þarna er ég algerlega sammála þér, góði vin. Ég veit sveimér ekki hvernig það mál endar né önnur hér á okkar ástkæra landi, þar sem flest er í steik sem getur yfirhöfuð verið í steik.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.2.2009 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband