Núverandi stjórn og nýr stjórnarsáttmáli

Það gerist ekki oft að ég verði kjaft stopp en það gerðist í gær þegar ég fékk símtal frá NRK og mér sagt að Geir Haarde hefði grreinst með illkynja æxli og hann boðað tll kosninga 9. maí.  Ég gat því miður ekki kommenterað á þetta þar og þá enda staddur í íþróttasal með nemendur mína í körfubolta.   Ég óska Geir góðs bata og óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta í komandi baráttu.

Eftir því sem ég hugsa meira um  ástandið í stjórnmálunum heima fjarlægist ég meir og meir þá hugmynd að mynduð verði ný stjórn, með VG og stuðningi Framsóknar.  Í fyrstalagi get ég ekki hugsað mér Ögumund Jónasson í ríkisstjórn og í öðrulagi treysti ég ekki Framsókn nú frekar en fyrr. Framsóknarflokkurinn er ekki akkurat sá flokkur sem þekktastur er fyrir staðfestu og tryggð svo ekki sé talað um óspillta ásýnd.

Held að Þorgerður Katrín hafi komið með góða tillögu þegar hún sagði að best væri að núverandi ríkistjórn héldi áfram fram að kosningum en gerðu með sér nýjan stjórnarsáttmála.  Þar þyrfti þá að taka á málunum með 100% meiri slagkrafti en hingað til og byrja á að hreinsa til í ríkistjórninni, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. 

Það er að sjálfsögðu seint en ekki of seint og tvímælalaust betri kostur en að mynda minnihlutastjórn sem treysta þarf á Framsókn. 

 


mbl.is Stjórnarskipti breyta engu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingunn Guðnadóttir

Er ekki stóra hættan nú, að það er ekki hægt að laga ásýnd flokkanna??

Hvaða máli skiptir hvort það verða "ný" andlit í frontinum??

Engu. Þetta er allt svo samkrullað í vitleysunni, að það er ekki hægt að vekja tiltrú fólksins með slíkum hrókeringum.

Ingunn Guðnadóttir, 24.1.2009 kl. 11:01

2 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Ég frábið mér líka VG og B...Sé ekki hvað betra tekur við kosningar..ef allir sömu flokkar og menn  verða áfram í sínum sætum....þar verða engar breytingar því miður..við almenningur þurfum að gera innrás í flokkanna og heimta breytingar...við eigum fá að númera frambjóðendur á listanna,þeir eiga svo að hlíta því..en ekki ákveða sjálfir vilja þetta eða hitt sætið þó aðallega fyrsta..fara svo í fýlu ef þeir fá það ekki...Kveðja

Halldór Jóhannsson, 24.1.2009 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband