Jónas heldur ekki kjafti

IMG_2430Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, er réttur maður á réttum stað. Hann hefur alla tíð verið duglegur við að fordæma árásir Ísraels hers á börn og óbreytta borgara í Palestínu.  Hann lætur sitt heldur ekki eftir liggja við fordæmingu annarra vilimanna sem fara með valdi gegn saklausu fólki hvar sem er í veröldinni.

Jonas Gahr Störe er sennilega einn markverðasti stjórnmálamaður heimsins um þþessar mundir.  Hann nýtur trausts og virðingar allrar norsku þjóðarinnar hvar í flokki sem menn standa.  Von flestra er að hann taki fljótlega við formennsku í Verkamannaflokknum.  Maður eins og Gahr Störe nýtast best sem leiðtogar samfélaga sinna.

Það er meira en hægt er að segja um íslenska ráðamenn sem láta sér fátt um finnast um óþokkabragð gyðinga á Gaza.   Ríkisstjórn Íslands á að sjálfsögðu að fylkja sér með þeim þjóðum sem fordæma ofbeldi gegn óbreyttum borgurum um heim allan.  Þar höfum við einna besta stökkpallinn til að endurvinna trú og traust okkar í samfélagi þjóðanna.  

Ég verð bara að segja að ég er hættur að éta gyðingakökur.  Get ekki smakkað á nokkru sem kennt er við gyðinga lengur. 


mbl.is Framganga Ísraels fordæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Um leið og ég óska þér gleðileg árs vinur vil ég þakka þér fyrir skemmtilegt blogg sem ég les alltaf, og hafðu gott ár, og Sjonni gamli var að koma frá Kanarý og honum fannst kalt þar, en við félagar erum nú farnir á hafið. Störe og Harde örugglega ekki skildir þó Harde sé hálf norskur.

Grétar Rögnvarsson, 4.1.2009 kl. 17:20

2 Smámynd: Ingunn Guðnadóttir

Nei vinur......Láttu þig ekki dreyma um að íslensk stjórnvöld taki undir og fordæmi þennan hrylling.

Eru þetta ekki afkomendur Gyðinga, sem voru ofsóttir á hryllilegan hátt í seinna stríði???

Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur, þegar svona kemur upp.

Ingunn Guðnadóttir, 4.1.2009 kl. 20:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband