Konan í mínu húsi slátraði tveimur köngulóm

Verð að viðurkenna eð ég hallast frekar á sveif með Obama í þessum kosningum.  Sá gamli, McCain, minnir mig svolítið á Nixon og þó hann hafi gert margt gott í Hvíta húsinu gerði hann líka margt ótrúlega vitlaust.  Munurinn er þó sá að McCain virðist vera heiðarlegur en það var Nixon aldrei.

Hvað um það. Það verður bara gaman ef ættingjar Obama geta slátrað nauti í Kenýu.  Hér í Gjerdrum, í norska konungsríkinu, tók kona mín sig til og slátraði tveimur köngulóm.  Þæt voru stærri en allar aðrar köngulær sem hún hafði séð á 54 ára æfi sinni.  Til samans jafnast þær örugglega á við nautið sem bíður slátrunar í Kenýu.   Munurinn er sá að nautið verður sennilega étið en við höfum  ekki hugsað okkur að leggja okkur köngulærnar til munns.

Skálaði þó í dönskum bjór, Tuborg Guld, fyrir óréttmætu stigi til Liverpool í kvöld.   Er nokkuð viss um að línudómarinn sem dæmdi vítaspyrnuna hefur verið í Liverpool peysu innanundir dómaratreyjunni.


mbl.is Slátra nautinu ef Obama vinnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hressandi pistill til lestrar svona í morgunsárid.Ég er bara glöd med úrslit kosninganna í usa.Hefdi kosid Obama ef ég væri tar í landi.Hörku kona hún konan tín..Ég læt alltaf ryksuguna á tessar elskur sem kúra sig stundum upp í hornonum í loftinu.

Eigdu gódann dag og kvedja úr Jyderup.

Gudrún Hauksdótttir, 5.11.2008 kl. 06:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband