Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Er þetta brunaútsala

Ef einn besti maður Íslandsmótsins hefur ekki úr fleiri tilboðum að moða en frá GAIS í Gautaborg er betra fyrir KR að halda honum heima.  Það er alveg klárt að GAIS kemur ekki til með að borga sanngjarnt verð fyrir besu menn Íslandsmótsins.

Rúnar minn.  Þú sem hefur góð sambönd, bæði í Noregi og Svíþjóð, finndu eitthvert félag sem er tilbúið til að borga fyrir strákinn það sem KR á skilið að fá fyrir hann. Mér þætti ekkert slæmt að fá hann í Lilleström eða Stabæk.


mbl.is Guðjón á leið til GAIS?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný kynslóð þjálfara á Íslandi

Það hefur verið virkilega skemmtilegt að fylgjast með íslenska fótboltanum úr fjarlægð í sumar. Svo virðist sem deilidin hafi ekki verið sterkari í mörg herrans ár.  Það sýna úrslitin. Allir gátu unnið alla. Það sem kom kannski mest á óvart var hið ótrúlega slaka gengi ÍA.

Það sem mér finnst einstaklega jákvætt er að sjá að upp er að koma á eyjunni ný kynslóð "topp þjálfara."  Bæði Ólafur Kristjánsson og Kristján Guðmundsson koma með reynslu frá Norðurlöndunum þar sem þeir höfðu báðir staðið sig mjög vel og vakið athygli fyrir störf sín. Kristján í Svíþjóð og Ólafur í Danmörku. Vonandi að þeir haldi sig heima á Íslandi í mörg ár til vibótar.

Þá hafa Heimir Guðjónsson og Ásmundur Arnarson stimplað sig inn sem miklu meira en meðaljónar sem þjálfarar í efstu deildinni.  Heimir kórónar sitt fyrsta ár sem þjálfari með Íslandsmeistaratitli. Ekki margir sem hafa náð þeim árangri.  Ásmundur stýrði hinu unga Fjölnisliði örugglega í gegnum tímabilið og var lengi vel meðal efstu liða en ekki í fallbaráttunni eins og spáð hafði verið.  Flottur árangur og í samræmi við það frábæra uppbyggingastarf í Grafarvoginum sem forráðamenn Fjölnis hafa staðið fyrir.

Þá er árangur Þorvalds Örlygssonar ekkert til að fúlsa yfir. Hann tekur við handónýtu Framliði sem verið hafði eins og jójó á milli deilda síðustu árin. Í ár tylltu  Safamýrarmenn sér aftur á meðal hinna stóru og með sama áframhaldi verða þeir þar næstu árin.

Skagatvíburarnir Bjarki og Arnar hafa sannað sig sem þjálfarar þó þeim hafi ekki tekist ætlunarverk sitt í sumar. Vonandi að þeir haldi sér í boltanum í mörg ár til viðbótar.

Það er því bjartviðri undan í íslenska boltanum. Loksins eigum við marga unga toppþjálfara sem lyft geta íslenskum fótbolta nær því sem Norðurlandaboltinn er. Engin vafi að gömlu refirnir Jankó og Logi hafa fengið verðuga yrðlinga að etja kappi við.    


mbl.is Ólafur hefur fullan hug á að halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir bókinni

Keflvíkingar geta engum þakkað nema  eigin aulaskap fyrir að verða af Íslandsmeistaratttlinum í ár.   Þeir fóru einfaldlega á taugum þegar FH-ingar fóru að anda í hálsmálið þeirra í síðustu viku. Taugaflækjan náði svo hámarki þegar liðið er kallað út á kvöldæfingu í hálfleik þegar FH var að vinna Breiðablik.  Það eru í besta falli einkennileg skilaboð til leikmanna og greinilegt að þau hafa farið eitthvað öfugt í þá.

Eftir að hafa verið 8 stigum á undan Hafnarfjarðarliðinu, fyrir aðeins nokkrum dögum, er með ólíkindum að láta titilinn ganga sér úr greipum með tapi fyrir FRAM og það á heimavelli sínum í Keflavík.  Þetta er rakið dæmi um taugaáfall í fótboltanum. 

 Ekki það að ég harmi sigur FH.  Öðru nær. Gæti varla verið ánægðari nema ef Grindavík næði einhvern tíman að krækja í titilinn.  Svo náttútlega herf ég ekkert á móti KR. Þeir riðu svo sem ekki feitum hesti frá leiktíðinni og verður sepnnandi að vita hvað gerist þar á bæ með haustinu.

TIL HAMINGJU FH


mbl.is FH-ingar lyfta Íslandsbikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétta hugarfarið

Ég hef aldrei haldið með Skagamönnum nema þá í Evrópukeppnum þar sem maður gerir það að skyldu sinni að halda með íslensku liðiunum, smama hvaðan þau koma.

En ég hef lengi hrifist af tvíburunum, Bjarka og Arnari, fyrir hugarfarið sem þeir sýna hvar sem þeir eru. Að sjálfsögðu hef ég lítið fylgst með íslenska boltanum í sumar nema bara í gegnum blöðin og RÚV, útvarp og sjónvarp.  Það litla sem ég hafði séð af Skagamönnum í sjónvarpinu bent til þess að það var miklu meira að í liðinu heldur en hægt var að kippa í liðinn á nokkrum vikum.  Fallið var nánast óumflýjanlegt nema tími kraftaverkanna léti á sér kræla.  Það gerist bara svo sjaldan í fótbolta.

 En það er engin spurning að bræðurnir hafa lagt sitt af mörkum og sýna sitt rétta andlit og hugarfar með því að yfirgefa ekki sökkvandi skip.  Það er kominn sjór yfir lunninguna en skútan er ekki sokkin og að ári getur hún aftur blandað sér í leikinn með aflakóngunum á stigaveiðunum í íslensku úrvalsdeildinni. Bræðurnir eru réttu mennirnir til að fleyta þeim gulu í gegnum brotin og á lygnan sjó í fyrstudeildinni.

 Verð að bæta því við hérna að ég gleðst að sjálfsögðu ógurlega yfir sigri Grindvíkinga á HK.  Hann sýnir gulglöðu Suðurnesjamennirnir eru gerðir úr eðalefnum og halda ótrauðir áfram í efstu deild að ári.  


mbl.is Bjarki: „Okkar skylda að halda áfram“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindavíkurbær þarf ekki að skammast sín fyrir neitt.

Mér finnst það nú full langt gengið að halda því fram að þegar leikmenn Grindavíkur ná ekki að standa sig eftir væntingum að allt bæjarfélagið þurfi a skammast sín.

Ég er alveg klár á því að hafnarvörðurinn, skólabílstjórinn eða hjúkkan hefur ekkert að skammast sín fyrir þó UMFG tapi leik.  Ekki einu sinni gangaverðirnir í skólanum þurfa að skammst sín.

Ef einhver þarf að skammast sín fyrir að tapa leik eru það þeir leikmenn sem ekki hafa gefið sig 100% í leikinn af einhverri ástæðu.  En það er nú bara þannig að menn eru misjafnlega upplagðir á stundum og það er ekkert til að  skammast sín fyrir.  Hitt er annað mál þegar menn nenna ekki að leggja sig fram eiga þeir að skammast sín oní rassgat fyrir að svíkja félaga sína í liðinu, stuðningsmenn og styrktaraðila.  Þar með talið bæjarfélagið sem reitir ótæpilega úr sjóðum sínum til þess að hægt sé að keppa með höfuðið hátt í Grindavík.

 En það er góður eiginleki hjá leikmönnum að horfast í augu við staðreyndir og skilja og viðurkenna þegar þeir hafa klikkað.  Þá geta þeir tekið sig saman í andlitinu og gert betur næst. Annars ekki.

 

Áfram Grindavík  


mbl.is „Bæjarfélaginu til skammar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimavöllurinn hættulegur

Það lítur einna helst út fyrir að heimavöllurinn sé Grinvdíkingum hættulegur þessa leiktíðina.  Alla vega gengur okkur illa að safna stigum á annrs fínum fótboltavellinum í höfuðstað Suðurnesjanna. Frömmurum tókst að lappa örlítið upp á tölfræði sína á Grindavíkurvelli þar sem þeir hafa ekki alltaf riðið feitum hestum frá viðureignum sínum.

 Annars hefur greinilega verið háspennna í leikum kvöldisns.  Keflavík tapar stigum með nánast unnin leik gegn KR og það sama gerist í leik Fjölnis og FH þar sem FH-ingar jafna seint í viðbótartíma.  Það var þó alveg ljómandi gott. Það verð ég að segja.  Get ekki unað Keflvíkingu að hirða Íslandsmeistarabikarinn baráttulaust.   Hef fulla trú á að Heimir komi sínum mönnum á skrið aftur.

Nú er nokkuð ljóst að hörmungar Skagamanna eru tilkomnar vegna Guðjóns Þórðarsonar.  Bræðurnir eru búnir að fá einhverjar vikur til að lappa upp á liðið en það dugir bara ekki til.  Skagamenn hljóta að vera með afspyrnu slakt lið að þessu sinni og kanski er það besta lausnin fyrir þá finna sig í 1. deildinni  þar sem þeir finna jafningja sína.  Þeir gulu og glöðu mega muna sinn fífill fegurri.


mbl.is Framarar sigruðu 2:0 í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindavík á grænni grein.

Frábært hjá Grindavík að leggja FH að velli í Krikanum.  Samkvæmt Mogganum voru aðeins á milli 7 og 800 manns sem urðu vitni að afrekinu. Það er miður hve fáir Íslendingar nenna að leggja leið sína á völlinn.  Virðist vera nánast ómögulegt að skapa einhvern fótboltakúltúr á eyjunni sem trekkir að áhorfendur.

Það var ekki síður gleðiliegt að KR tók Fram á lokasprettinum og smellti á þá 2 mörkum.  En það sem mér finnst merkilegast við deildina í dag er mjög gott gengi Breiðabliks. Það er deginum ljósara að Óli er að gera mjög góða hluti í Kópavoginum.

Áfram Grindavík.


mbl.is Óvæntur sigur Grindvíkinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað

vinna Blikastelpurnar 9 norðanliðið þegar búið er að blanda Þórsurum inn í pakkann. Þó það nú væri.  Efast um að þær grænu hefðu unnið ef þær hefðu leikið 9 á móti hreinræktuðu KA liði.  En nú var ekki því að heilsa og því var þetta öruggt í lokin fyrir Blikastelpur.
mbl.is Dramatík á Kópavogsvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölnis með 14 leikmenn

Ég skil vel að Ási sé að verða örvæntingafullur þegar liðið tapar nú 3 leikjum í röð eftir hina góðu byrjun í vor.  Það er kannski ein leið út úr vandanum að safna liði og stilla upp með 14 kalla í þeirri von að dómarainn kunni ekki að telja.

En 14 kallar hefðu ekki dugað móti Grindavík. Ekki einu sinni 15.  En það ætti að duga á móti Fylki og Fram.


mbl.is Ásmundur: Við þurfum að safna liði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pétur Hafliði í leikbann!!!!????

Hvernig dettur nokkrum manni í hug að dæma Pétur H. Mateinsson í leikbann. Maðurinn en manna prúðastur, utan og innan vallar og gerir aldrei flugu mein. Svo leikur hann fyrir KR og á auk þess undur fallegan og skemmtilegan hund.  Samt er aldrei hundur í Pétri. 

Þarna hafa aganefndinni orðið á enn ein mistökin.  Þetta gengur ekki lengur svona uppvöðslusemi á kontórunum hjá KSÍ.  Geir verður að fara gera eitthvað í þessu.  Hann er jú líka formaður okkar KR-inga.


mbl.is Pétur og Ólafur í eins leiks bann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband