Færsluflokkur: Bloggar
Fylkir er í djúpum ... þessi misserin. Með ólíkindu hvernig gengið hefur sveiflast í sumar miðað við þann mannskap sem liðið hefur að moða úr. Einhvern veginn hef ég alltaf haldið að það hafi verið mjög vel haldið um stjórnina hjá Árbæjarliðinu.
En hvernig á ég svo sem að skilja þetta sem hef ekki séð einn einasta leik á Íslandi í sumar. En maður veltir vöngum.
Bloggar | 7.8.2008 | 21:11 (breytt kl. 21:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Las það á Sandkornsvef DV að Mannlífsvefurinn greini frá "krassandi orðrómi" um að Ólafur F. geti ekki hugsað sér að styðja meirihlutastarfið í borgarstjórn með Hönnu Birnu í borgarstjórastólnum. Það fylgdi reyndar með að Ólafur vildi vera borgarstjóri út kjörtímabilið.
Tók þetta náttútulega sem brandara. En ekki kæmi mér á óvart þótt sannleikskorn leyndust í þessu. Held það kæmi engum á óvart ef karlinn hyrfi úr borgarstjórninni og þar með félli meirihlutinn í þriðja sinn á kjörtímabilinu.
Menn þurfa svo sem ekkert að vera á hissa á ömurlegri útkomu meirihlutaflokkanna í Capacent könnuninni.
Bloggar | 7.8.2008 | 21:04 (breytt kl. 21:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vilmundur Gylfason var fæddur 7. ágúst 1948 og hefði því orðið sextugur í dag hefði hann lifað.
Það er full ástæða til að halda minningu og nafni Vilmundar á lofti ekki síst vegna þeirrar lognmollu og hagsmunagæslu sem nú svífur yfr íslenskum stjórnmálum.Vilmundur fórnaði drjúgum hluta starfsæfi sinnar í baráttu fyrir réttlátara og betra samfélagi Íslendingum til handa.
Vilmundur kom eins og stormsveipur inn í stjórnmálin á 8. ára tugnum. Kjörorð hans var löglegt en siðlaust. Staðhæfingar sem menn höfðu ekki mikið velt fyrir sér þegar stjórnmálamenn voru annars vegar. Hann taldi flokkakerfið gamaldags og úrelt og að það héngi saman á samtryggingu og spillingu.
Það voru einkum Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sem fengu að kenna á vendi Vilmundar. Enda höfðu þessir flokkar aldrei verið neitt annað en hagsmunasamtök eigenda sinna, bænda og atvinnurekenda og átti ekkert skylt við stjórnmálaflokka. Það sjáum við best í daga eftir að samtrygging þeirra breyttist í söfnuði. Fyrst missti Framsókn fótanna með þeim afleiðingum að Sambandið virtist gufa upp í skítalykt. Sú varð reyndar ekki raunin því nokkrir einstaklingar úr innsta spillingarhring flokksins hirtu eigur þess og stungu í eigin vasa. Allt á löglegan en siðlausan hátt.
Hagsmunasamtök Sjálfstæðisflokksins sváfu á verðinum þegar Sambandið var horfið og töldu sig nokkuð örugga um að engin myndigeta hróflað við þeim lengur. Þar klikkuðu þeir illilega. Bæði var að ungir og velmenntaðir viðskiptamenn höfðu lært flerir klæki en öldungarnir í Valhallarveldinu. Svo hitt að þeir sem flokkurinn reyndi að sparka undan fótunum, nefnilega Björgólfur og félagar hans, stóðu tvíefldir upp aftur og hafa nú keypt og gleypt óskabarn flokksins, Eimskip.
En það var ekki bara framsókn og íhald sem urðu fyrir hinum nýja vendi Vilmundar. Hann gleymdi ekki sínum eigin flokki Alþýðuflokknum sem faðir hans, Gylfi Þ. Gíslason, hafði leitt árum saman. Þá fékk Alþýðubandalagið sína yfirhalningu líka. Þessir flokkar voru fullir af kerfisköllum sem sóttust eftir völdum í gjörspilltu umhverfinu.
Alþýðuflokkurinn galt afhroð í þingkosningunum 1971.Skipt var um formann og Benedikt Grændal tók við af Gylfa Þ. Benedikt hlustaði á Vilmund og aðra unga og uppreisnargjarna menn í flokknum. En hann var ekki lengi formaður því eftir innbyrðis deilur og spillingu var Bensa bolað burt og Kjartan Jóhannsson, fyrrum sjárútvegsráðherra, varð formaður flokksins. Það voru mikil mistök því menn muna einna helst eftirKjartani fyrir tvenn hlægileg mistök sem hann gerði.
Fyrst spurði hann Alla ríka á Eskifirði hvort hann hefði lengi fengist við útgerð þegar sá síðarnefndi þurfti á fundi með ráðherra á að halda. Það seinna varð reyndar ráðherranum til skammar þegar hann sagði Vilmund vera geiðveikan er hann deildi á innra skipulag og spillingu innan Alþýðuflokksins.
Það var nokkuð ljóst að Vilmundur átti enga leið með möppudýrinu Kjartani. Hann yfirgaf því Alþýðuflokkinn og stofnaði Bandalag jafnaðaarmanna með góðu og greindu fólki. Sá flokkur sagði spillingu, siðleysi og varðhundum valdsins stríð á hendur. Því miður naut flokkurinn ekki starfskrafta Vilmundar lengi. Þrátt fyrir hæfileikafólk í þingflokknum var þar engin ofurhugi sem fyllt gat skarð leiðtogans. Bandalagið lognaðist því útaf.
En hin ofursterka réttlætis og siðferðiskennd Vilmundar lifir lengi í hugum fólks sem ataðsit í pólitíkinni á 8. og byrjun 9. áratugarins. Við vorum ekki samherjar í stjórnmálum en hann átti alla mína virðingu.
Bloggar | 7.8.2008 | 12:43 (breytt kl. 13:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nú eru menn byrjaðir að blogga um það hvort Eggert Magnússon, fyrrum KSÍ formaður, hafi komið í veg fyrir að feðgarnir Arnór og Eiður Smári léku saman í landsliðinu í leiknum fræga í Eistlandi.
Það held ég að sé langsótt fullyrðing. Í fyrsta lagi er það landsliðsþjálfarinn sem ber alla ábyrgð á vali landsliðisins. Einhvern veginn held ég að Logi Ólafsson hefði ekki viljað að Eggert né nokkur annar á kontórum KSÍ væri með puttana í því vali. Í örðu lagi, ef satt væri, trúi ég varla öðru en að Logi hefði sagt frá því strax að hann hafi fengirð skipun "að ofan" um að hann mætti ekki nota Arnór og Eið á vellinum samtímis. Hann fékk nefnilega talsverða gagnrýni fyrir að misnota þennan skemmtilega möguleika á að setja spor sín fyrir alvöru á knattspurnusöguna.
Ísland teflir landsliði sínu fram mót öðrum þjóðum til að reyna að vinna leiki. Það er hlutverk landsliðsþjálfar að sjá til þess að það gangi sem best. Ef landsliðsþjálfarar þurfa að fá einhverja hjálp frá formönnum KSÍ til að velja landsliðið eru þeir gúngur sem ekkert hafa í starfið að gera. Og það er Logi Ólafsson ekki. Er nokkuð viss um að Eggert Magnússon er heldur ekki svo sauðheimskur að hann láti sér detta í hug reka puttana í valið á byrjunarliði eða innáskiptingum. Hvorki hjá landsliðinu eða West Ham meðan hann var þar.
Hitt er svo annað að það hefur örugglega verið talað um það á skrifstofum KSÍ eins og annars staðar í samfélaginu að það yrði bæði skemmtilegur og sögulegur atburður í knattspyrnusögunni ef feðgarnir hefðu spilað saman með landsliði okkar. En það var Logi sem tók út liðið og stýrði því á þann hátt sem hann taldi vænlegastan til árangurs. Ekki Eggert.
Bloggar | 7.8.2008 | 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Holt er mjög merkur staður og það auðvitað fylgir því mikil ábyrgð að halda slíkan stað. Og við viljum, þar hefur núna nýlega verið byggt upp afar myndarlegt, afar myndarlegt starf, á, í Holtsskóla sem var, þar er kirkjan núna og rekur friðarsetur í Holti með mjög myndarlegum hætti. Prestur í Holti hlýtur að hafa sérstakar skyldur við það. Og svo er auðvitað það að gæta og nýta þessa merku jörð sem að Holt óneitanlega er. Það verður, það er veigamikill partur af starfi hvers prests sem situr í Holti og þannig viljum við að það sé.
Þessi tilvitnun er úr viðtali við biskups Íslands á heimasíðu RÚV. Ég velti því fyrir mér hvort blessaður biskupinn hafi verið búinn að fá sér aðeins of mikið á tönnina þar sem þetta svar hans er bara sundurlayst rugl og þannig finnst mér allt viðtalið vera. Í öllu falli eru svörin hvorki stutt né hnitmiðuð.
Bloggar | 7.8.2008 | 07:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
FH-ingar virðast vera búnir aða finna taktinn aftur og verð bara aað segja að það er gott. Þjálfari þeirra er jú KR-ingur og á ekkert nema gott skilið. Keflvíkiingar halda sínu striki þó þeir hafi verið heppnir að næla í stigin 3 heima á móti botnliði HK. Var ganab að hlusta á lýsunguna handan við hafið.
Skagamenn virtust nokkuð sprækir eftir lýsingu Hjartar. Og ekki lýgur hann. En svo virðist vera að liðið sé einfaldalega ekki nogu gott þegar á reynir. Framarar eru malla þetta á góðum stað í deildinni.
En KR!!!??? Þeir hikstuðu á móti Blikunum. Það hélt ég að myndi aldrei gerast. Nú verður Rúnar að ræða við Loga. Þetta gengur ekki.
En ég tek gleði mína á ný á morgun þegar Grindavík leggur Fjölni. Nú ef það gerist ekki þá verð ég bara glaður á laugardaginn þegar ég fer og hitti þá Eirík Hauksson og Ken Hensley. Verða brjálaðislegir tónleikar í Gressvik um helgina.
Bloggar | 6.8.2008 | 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ómar Ragnarsson er góður maður og ganglegur samfélagi okkar. Ný verðlaunaður og við getum öll verið stolt og samglaðst honum.
En nú bloggar hann um íþróttir og pólitík eins og það eigi ekkert skilt. Ég veit ekki betur en að í öllum löndum heims þar sem íþróttir eru í hávegum hafðar séu þær algerlega háðar jákvæðri pólitík. Þær eru styrktar af almanna fé sem údeilt er af pólitíkusum. Alþjóða Ólympíunefndin er rótpólitísk.
En Ómar veit allt um þetta og hann er að vonast til þess að menn noti ekki tækifærið við verðlaunaafhendingar í Peking til að vekja athygli á pólitískum boðskap. Ég er ekki sammála honum þar. Mér finnst að hver einasti frjálsborinn og heiðarlegur íþróttamaður eigi að vekja athygli á því hvernig óþokkarnir í Peking hafa staðið að málum frá þvi þeim var úthlutað OL 2008.
Það er ekki bara Tíbetar sem þeir fótum troða og sýna ofbeldi á hverjum einasta drottins deg. Þeir halda áfram að loka alla þá sem virða skoðanir sýnar um meiri mannréttindi í alþýðulýðveldinu bak við lás og slá þar sem gengið er í skrokk á þeim.
Eftir að blaðamenn fóru að streyma til borgarinnar til að flytja heimsbyggðinni fréttir af gangi mála eru þeir undir ströngu eftirliti stjórnvalda. Það er njósnað um þá og þeir skammaðir ef þeir segja ekki "rétt" frá og jafnvel vísað úr landi.
Ekki bara það. Heldur hafa verið að berast fréttir í vikunni af því að stjórnvöld í Peking reka verkalýðinn, sem unnið hefur hörðum höndum við að koma OL-mannvirkjunum upp, úr borginni án þess að borga þeim laun fyrir margra ára puð. Fólk sem komið hefur langt að til að vinna að því að OL geti orðið bæði þeim og þjóð sinni til sóma. Þeir eru óæskilegir borgarar meðan á leikunum stendur og reknir í útlegð. Sama má segja um fátæklinga og betlara í borginni. Öllum slíkum er smalað saman og rekið í "útlegð".
Svo sitja Ólafur Ragnar og Þorgerður við hlið þessara "höfðingja" á opnunarhátíðinni, ásamt fjölda mörgum ráðamönnum í hinum svokallaða frjálsa heimi, og brosa við glæpum þeirra.
Auðvitað átti Alþjóða Ólympíunefndin að fresta ÓL 2008 og fara með þessa mestu íþróttahátíð heimsins burt frá Kína þar sem stjónrvöld þar hafa eingöngu notað leikana sér til pólitísks farboða.
Ekki síðan 1936 hafa Ólympíuleikar verið haldnir undir jafn ógeðfelldum formerkjum. Nefnilega mannvonsku.
Bloggar | 6.8.2008 | 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veigar gulltryggði stöðu Stabæk á toppi úrvalsdeildarinnar og skaut þar með RBK endanlega út úr baráttunni um verðlaunasæti í nóvember.
Stabæk hefur nú 34 stig á toppnum. Tromsö skaust í annað sæti eftir 0 -1 á Ham Kam og er með 31 og FFK er í 3. sæti með 30 stig. Rosenborg er í 9. sæti með 21 stig
Pálmi Rafn kom inn á á 90. mínútu en Veigari var skipt útaf á 81. mín
Bloggar | 6.8.2008 | 18:54 (breytt kl. 19:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veigar Páll var að koma Stabæk yfir á móti Rosenborg á Lerkendal. RBK komst í 1 - 0 eftir hræðileg mistök Knutesn í Stabækmarkinu. Brassinn, Alanzinho, jafnaði á 69.mín og VEIGAR PÁLL kom Stabæk í 2 - 1 á 274 mín. Nú eru 10 mín eftir af leiknum.
Þetta er fyrsta deildarmark Veigars síðan í maí ef ég man rétt. Því ber að fagna með ST'ORU EFFI
Pálmi Rafan hefur ekkert komið við sögu en situr á beknum
Bloggar | 6.8.2008 | 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ási hefur allataf verið duglegur að finna einhvern til að eiga í útistöðum við. On nú ræðst karlinn ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Það er bara Fiskistofa og Ríkistjórnin í sameiningu sem stýrimaðurinn ætlar að knésetja.
Samkvæmt Mannréttindanefnd SÞ eru það mannréttindabrot að banna sjómönnum veiða fisk. Það er því verið að brjóta á Ásmundi og mörgum fleiri. En mótmæli Ása er dæmd til að mistakast. Alveg eins og uppákomur Helga Hóseasonar á árum áður. Hér þarfnast kerfisbundinnar pressu á stjórnvöld um að þau virði álit Mannréttindanefndarinnar. Einn trillukarl í Sandgerði getur lítið gert einn og óstuddur. Ekki heldur þó Gretar Mar rölti á bryggjuna og klappi honum á axlirnar og segi; "Þetta var gott hjá þér Ási."
Mér finnst með ólíkindum að þeir stjórnmálamenn sem hæst hafa galað skuli nánast steinþegja á þinginu í stað þess að beita áhrifamætti. Hvernig væri nú að svæla svarið við áliti Mannréttindanefndarinnar út úr sjávarútvegsráðherranum og krefjast þess að ríkistjórn lýðveldisins haldi við þæ samþykktir sem hún hefur skrifað undir með veru sinni í SÞ. Í öllu falli gætu þeir sem vilja mannréttindi sjómönnum til handa neitað að styðja að Ísland fái fulltrúa í Öryggisráðinu meðan ríkisstjórn landsins treystir sér ekki til að fara eftir ályktun Mannréttindanefndarinnar.
Guðjón, Gretar og aðrir "stuðningsmenn sjómannréttinda. Sýnið að þið meinið eitthvað með geltinu.
![]() |
Ásmundur mótmælir enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 6.8.2008 | 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
-
stebbifr
-
adhdblogg
-
alla
-
adalsteinnjonsson
-
arogsid
-
pelli
-
kaffi
-
beggipopp
-
bjarnihardar
-
bokakaffid
-
gattin
-
disadora
-
fannarh
-
gislisig
-
gretaulfs
-
gretarro
-
jyderupdrottningin
-
gudrununa
-
gthg
-
hafsteinnvidar
-
heidistrand
-
hehau
-
helgigunnars
-
hermingi
-
drum
-
disdis
-
ingabaldurs
-
veland
-
jakobk
-
jonkjartansson
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonerr
-
kalli33
-
ktomm
-
loopman
-
st1300
-
7-an
-
palmig
-
krams
-
ragnarb
-
raggiraf
-
ragnar73
-
ridartfalls
-
sng
-
snorribetel
-
vefritid
-
thormar