Færsluflokkur: Bloggar

Vöndur Davíðs og máttleysi Geirs

Dr. Richard Portes hefur greinilega komist að sömu niðurstöðu og flestir greinendur að þjóðnýting Glitnis var versta leið sem hægt var að finna þegar horft er til hagsmuna þjóðarinnar.  Gjörningurinn setti hina bankana í ómæld vandræði og álit ríkisvaldsins og ekki síst Seðlabankastjóra, beið alvarlegan hnekki í útlöndum.

Sú hugsun verður sí nærgöngulli hvort styrt samband Seðlabankastjóra og aðaleiganda Glitnis hafi ráðið gjörðum þess fyrrnefnda sem síðan hafi sagt forsætisráðherra að halda kjafti og hlýða efnahagsráðgjafanum.

Eftir situr þjóðin og býr við enn verri lífskjör en hún hefði þurft hefði bara einhver önnur leið verið valin eða þá engin.

Spurningin fyrir almenning er bara sú hvort við eigum heldur að trúa uppgjafa stjórnmálamanninum og lögfræðingnum í Seðlabankanum eða viðskiptaprófessorum og fjármálagreinendum um heim allan? 


mbl.is „Fráleitt að Glitnir hefði orðið gjaldþrota"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veigar Páll

Veigar Páll var arkitektun að tveimur fyrstu mörkum Stabæk og skorðai sjálfur það þriðja.  Hann lék ekki allan leikin því honum var skiptútaf í lokin fyrir Tommy Stenersen.

Stabæk er nánast orðið meistari. Alla vega með báðar klærnar á  deildarmeistaratitlinum. En auðvitað gæti brotnað kló en það þarf hamfarir til að þeir missi titilinn.  Markahlutfallið er þess eðlis.


mbl.is Stabæk með aðra hönd á titli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stabæk deildarmeistari í Noregi

465px-veigar_pall_gunnarsson_2006_06_06.jpgStabæk er 2 - 0 yfir á heimavealli sínum gegn Ham Kam þar sem Veigar Páll var aarkitektinn að báðum mörkunum. Fyrst spilaði hann Alanzinio í gegn sem skorðai gull falleggt mark og 2 mínutum síðar splundraði hann vörn gestanna með sendingu inn í teiginn þar sem Nanskog fékk boltan að lokum og renndi honum í opið markið.

Og nú 5 mínútum fyrir leikslok skoraði Veigar beint úr aukaspyrnu.  Staðan er því 3 - 0 fyrir Stabæk

Stabæk hefur 9 stiga forystu þegar 3 umfrðir eru eftir og er með langbesta markahlutfallið svo það þarf mikið til að Bærums liðið tapi af deildarmeistaratitlinum.  Stabæk hefur góða möguleika á að vinna tvöfalt þetta árið þar sem þeir leika til úrlsita við Vålerenga um Noregsmeistaratitilinn.


Frábært

Þá er engin óvissa lengur með landsliðið.  Það er í öruggum höndum og við hlökkum til að fá það í heimsókn til Noregs 1. nóvember.
mbl.is Guðmundur íhugaði að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum.... KR.........

Það var ómæld ánægja að sjá KR lyfta bikarnum aftur eftir alltof langa tíma.  Ellefti bikarsigurinn er orðinn að veruleika, Pétur Marteins kveður með stíl og vetrarsólin skín fram á nótt í Skjólunum.  Líka hér á fjallinu hjá mér í Norge.

En þó þetta sé einhver leiðinlegasti bikarleikur sem ég hef séð, í sjónvarpi, þá verður að segjast eins og er að KR var miklu betra lið en Fjölnir þennan daginn.  Svona er þetta af og til og þrátt fyrir tap í bikarúrslitunum 2 ár í röð geta Fjölnsmenn verið stoltir af sjálfum sér. Félagið er enn í barnsskónum en hefur afrekað að komast í bikarúrslitaleik 2 ár í röð.  Þeirra tími kemur.

 

TIL HAMINGJU KR!!!


Ekkert að gerast.

Kom inn í bikarúrslitaleikinn 15 mínútum of seint.  En þessar 27 mínútur hafa að mestu verið hornspyrnur hjá KR sem ekkert kemur út úr og ein og ein aukaspyrna hjá  báðum liðum.  Það gladdi þó augað að sjá KR-ljónið leika sér í snjónum.

Það sama er uppi á teningnum í Englandi. Ekkert mark verið skorað þar heldur í fyrri hálfleik. Spurningin er hvort það sé ámóta gengisfall í fótboltanum og á íslensku krónunni. 

En verðum að vona að alla vega að KR og Fjölnir sýni okkur sæmilegan fótbolta í seinni hálfleik. 


mbl.is KR bikarmeistari í ellefta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiga nú eftirlaunaþegar að kaupa ríkið

Verð að segja að mér finnst það ótrúleg bíræfni af ríkisvaldinu að ætla að seilast í eftirlaunasjóði hins almenna verkamanns til að bjarga sér upp úr eigin skít. 

Lífeyrissjóðir eru nokkuð sem við erum búnir að nurla saman til að eiga í handraðanum er æviköldið kemur.  Við erum búin að borka skatt af þessum peningum til ríkisins og svo þurfum við aftur að borga skatt af þeim er við fáum eftirlaunin okkar.

Nú vill ríkisvaldið sem sagt fá þessar tryggingar okkar, sem við sem betur fer ávöxtum í útlöndum, heim til að setja í skuldahítina sem það er búið koma sér í með kaupunum á Glitni og því sem á eftir kemur með hina bankana sem allir eru veikir.

Tryggingar okkar frá ríkinu skulu vera ríkistryggð skuldabréf. Hvers virði eru ríkistryggð skuldabréf sem engin vill kaupa. Þau eru verðlaus og einskis nýtar tryggingar.  Ríkistjórnin getur alveg eins beðið okkur um að gefa sér þessa milljarða. 

Ég bara vona að það fólk sem við höfum treyst fyrir eftirlaununum okkar rasi ekki um ráð fram og flytji peningana úr arðsömum og öruggum bönkum erlendis í til að lappa upp á handónýta krónu og efnahagskerfi á Íslandi.

Það er verkefni Alþingis og stjórnvalda að sjá þjóðinni farboða en ekki almennings með eftirlaununum sínum.    


mbl.is Aðeins í örugga höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir Grindvíkingar

Flott byrjun á tímabilinu hjá Grindavík.  Vildi mikið til þess gefa að vera á skerinu og sjá "draumaúrslitaleik" á móti KR.

 Þennan bikar hölum við í land..........Grindvíkingar.


mbl.is Grindavík sigraði Snæfell 74:71 og mætir KR í úrslitaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seljið Gerrard en ekki til City

Þó Steven Gerrard sé einn besti miðvallarleikmaður í enska boltanum er hann ekki ómissandi fyrir Liverpool. Þess vegna á félagið að vera opið fyrir að selja hann og það til útlanda. Gróðinn af Gerrard dygði vel fyrir tveimur til þremur leikmönnum í toppklassa.

Meðan Rafa Benitez byggir allt spilliðsins í kringum þennan eina leikmann verður leikur liðsins alltof fyrirsjáanlegur.  Það sýndi sig glögglega í leiknum við Stoke þar sem Tony hafði unnið  heimavinnuna sína af kostgæfni og dró allar vígtennurnar úr sóknarleik LFC. Samvinna gerrard og framherjanna gekk ekki upp og þar með varð sóknarleikurinn handónítur.

Það hlýtur líka að vera álitamál hvort félagið eigi að halda í Benitez vinnist deildin ekki í ár. Það er deginum ljósara á framkomu leikmannanna á vellinum að þeim þykir ekkert sérstaklega gaman í vinnunni. Sennilega eru æfingarnar líka hundleiðnlegar án þess að ég viti nokkuð um það.

Svo virðist sem Benitez sé algerlega taktlaus maður þrátt fyrir að vera klókur þjálfari.  Það sér maður best á því þegar sýndar eru myndir af bekknum eftir að liðið hefur skorað. Þar situr Benni og nagar blýant eða skrifar eitthvað niður á blað. Hann samfagnar aldrei leikmönnum sínum og tekur alls ekki þátt í gleði þeirra yfir skoruðu marki. Og það sem verst er að hann er búinn að temja Sammy Lee líka. Sammy situr eins og rakki í bandi nú öfugt við það sem áður var þegar hann var hlaupin fagnandi út að hliðarlínu að stappa stáli í strákana. Í samanburði við Ferguson, Keegan, Dalglish, Wenger, Scolari svo maður tali nú ekki um gamla Shankli er Rafael Benitez eins og múmía.

Svo getur maður ekki sett annað en mörg stór spurningamerki við leikmannakaup hans. Torres virðist vera einu velheppnuðu kaupin meðan flestir aðrir eru rétt miðlungsmenn og ekki það góðir að Liverpool verði bara að fá þá. Það er þó von með einn eða tvo aðra en þvílík fjársóun í miðlungsleikmenn finnst vart hjá nokkru öðru liði í ensku úrvalsdeildinni.

Svo verð ég að segja eins og mér finnst. Framkoma hans við Hiipia var með þeim hætti að stjórnin hefði átt að grípa í taumana og skamma karlinn.  Svona gera menn ekki við mann sem hefur þjónað liðinu eins vel og hann hefur gert síðasta áratuginn. Og svo kostaði hann næstum ekki neitt.   


mbl.is Benítez: City fær ekki Gerrard
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bull & vitleysa

Engu er líkara en íslenska þjóðin sé gersamlega að fara á taugum í dag.  Fólk má helst ekki opna á sér munninn ef það vill ræða efnahagsmálin af ótta við að einhverjir fyllist hvíða og áhyggjum.

Að Kennarasambandið taki þátt í svona þagnarbindingaþvælu bendir í þá átt að forystan þurfi að fara koma sér á námskeið í "pedagogik"  uppeldis og siðfræði.  Eða hvenær fór það að verða holt að halda sannleikanum og þá um leið raunveruleikanum frá börnum?

Mér hefur alltaf skilist, eftir 35 ár í jobbinu, að affarasælast sé að kenna börnum að takast á við raunveruleikan og gera þau í stakk búin til að lifa sjálfstæðu lífi á fullorðins árum. Það verður ekki gert með því  að  pakka óþægilegum hlutum inn í bómull. Á endanum kynnast börnin hinni raunverulegu lífsbaráttu, bæði í blíðu og stríðu og þá standa þau sterkari að vígi vitandi að kennaraar og foreldrar hafi reynt að kenna þeim að lifa lífinu á sem eðlilegastan hátt. Líka í kreppuástandi eins og nú er.

Það þarf náttúrulega að segja börnunum hvað hefur gerst í samfélaginu og afherju fólk þurfi að breyta neysluvenjum sínum um stund.  Það er ekki þar með sagt að þurfi að mála skrattan á vegginn í hvert sinn sem við fáum stormin í fangið. En börnin verða sterkari sé þeim kennt að bregaðst við aðstæðum og þegar þau finna að þau geta treyst kennurum og foreldrum.  


mbl.is Kennarar taka undir með landlækni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Sept. 2025

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband