Það er athyglisvert að sjá hvernig Borgarahreyfingin hefur þingferil sinn. Loksins er kominn hópur á Alþingi sem lætur ekki kerfiskarla og varðhunda ólýðræðislegra vinnubragða í stjórnaráðinu ákveða hvernig fara á með atkvæði sitt á þingfundum.
Alþingi er æðsta stofnun Íslendinga og það er það sem á að hafa síðasta orðið í öllum málum. Líka ESB málinu. Svo virðist sem Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð hafi hvorki greind eða vilja til að koma sér upp úr gömlu hjólförunum þar sem keyrt var á því að ríkistjórnin ákvað allt og notaði Alþingi sem afgreiðslustofnun. Er ríkistjórnir eiga allataf að koma með skraddarasaumaðar hugmyndir til afgreiðslu á þinginu getum við lagt Alþingi niður í núverandi mynd. Þá nægir að hafa einhverja 5 - 7 fullt´rua fólkisins til að afgreiða stjórnarfrumvörpin.
Verð að segja að mér finnst þessir ungu flokksformenn ekki vera í neinum takt við raunveruleikan eins og hann birtist þjóðinni í vetur. Krafan var lýðræði og þá kröfu þjóðarinnar ber að uppfylla. Bjarni og Sigmundur Davíð virðast vera óvinir lýðræðisins og þingræðisins. Það er kannski ekkert einkennilegt við það. Þeir eru aldir þannig upp. Helmingaskipting Sjálfstæðis og Framsóknar ber að halda við svo lengi sem landirð þer í byggð.
Afstaðan lýsir skilningsleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 15.5.2009 | 05:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Þetta kom mér mjög mikið á óvart" Orð fyrsta fjósamanns í Framsókn um ESB þingsályktunartillögu utanríkisráðherra. Skilst að ríkistjórnin ætli ekki að standa að baki tillögunni.
Sá stutti tími sem Sigmundur Davíð hefur verið formaður Framsóknar hefur verið fullur af fyrirbærum sem komið hafa stráknum á óvart. Í fyrsta lagi hlýtur fylgisaukning flokksins, í fyrstu könnun eftir formannaskiftin, hafa komið honum gleðilega á óvart. Í öðru lagi hlýtir það líka að hafa komið formanninum unga á óvart þegar Alfreð og co þögguðu niður í honum er hann hugðist hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Þá hefur fylgishrunið í könnununum eftir að honum var sagt að hafa sig hægan einnig komið honum á óvart.
Þá kom það honum á óvart að hann varð bara núll og nix á hliðarlínunni hjá 80 daga stjórninni sem hann sjálfur var guðfaðir að. Sennilega kemur Sigmundi eitthvað mjög á óvart á hverjum einasta degi þangað til hann nær að þroskast sem stjórnmálaður. Þeim á nefnilega ekki að koma svo margt á óvart eins og heilindin hafa verið í þeirra röðum síðustu árain.
Sigmundur Davíð: Kom mjög á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.5.2009 | 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Liverpool yfirspilaði Villa í dag. Jon Carew var einasta ógnin í Villa liðinu með tveimur tilraunum sem Reina reddaði. Að sjálfsögðu.
Það voru þó tvo stílbrot í leik LFC í dag miðað við undanfarna 2 leiki. Dossena skoraði ekki 4. markið eins og hann gerði á móti Real og Schum Udt. Svo, aldrei þessu vant, missti Torres af markaveislunni og var auk þess daprasti leikmaður Liverpool í dag.
En nú getur allt gerst. Greinilegt að Man Udt. er í einhverri krísu þessa stundina og fyrst Fullham gat unnið þá geta allir unnið þá. Það er hund leiðinlegt að þurfa að treysta á hjálp frá öðrum en það verðum við að gera og vinna svo alla okkar leiki það sem af er leiktíðinni. Þá fáum við tvo tittla í safnið, PL-meistaratitilinn og CL titilinn. Eftir það verður það bara Gleðilegt Sumar
Gerrard með þrennu og eins stigs munur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 22.3.2009 | 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Verð að segja að leikurinn gegn Makedóníu var hreint út sagt magnaður á að horfa. Hann var spennandi frá því hann birtist á skjánum allt til þess að hann var flautaður af. Og sigurinn 29 - 26 er sannkallaður gleðigjafi í kreppukjaftæðinu. Það er alla vega ekki kreppa í handboltanum okkar.
Handbragð Guðmundar Þórðar leyndi sér ekki í útfærslu leiksins. Augljóst er að það hefur ekki verið auðvelt verk fyrir hann að búa til sigurlið eftir öll forföllin í leikmannahópnum. Menn voru að heltast úr lesyinni fram á síðasta dag. En Guðmundur náði á nánast engum tíma að setja saman lið sem hélt og vel það. Góð blanda úr unglingalandsiði og gömlu jöxlunum var hrist saman með þeim hætti að allir skildu hvert þeirra hlutverk var og menn héldu sig við það. Útkoman var æði heilsteypt lið sem lét brjálæðið á pöllunum ekki slá sig út af laginu. Og það sem enn betra var. Makedónski þjálfarinn hafði engin ráð gegn leikskipulagi Guðmundar og vel mótiveruðum íslenskum íþróttamönnum.
Hlakka til að ræða leikinn við handboltagengið á kennarastofunni hér í Noregi er líða tekur á daginn. Þeir halda því fram að Norðmenn séu ósigrandi eftir þjálfaraskiptin. En Norsararnir eiga eftir að fara til Íslands og þar ráðast úrslitin um hver vinnur riðilinn.
Guðmundur Þórður: Frábær frammistaða allra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.3.2009 | 06:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslyndaflokksins, hlaut enga hilli hjá flokksmönnum sínum í prófkjörini í NV kjördæminu. Fólkið vildi hann ekki á þing. En Magnús gefst ekki upp. Eða kannski skilur hann ekki þá útreið sem hann fékk í prófkjörinu. Nú ætlar hann að bjóða sig fram í formanninn, á móti sitjandi formanni, á landsþinginu í Stykkishólmi um helgina.
Þetta sýnir best dómgreindarleysi þingmannsins fyrrverandi. Ef hann heldur að hroðaleg útreið flokksins í skoðannakönnunum sé Guðjóni Arnari að kenna þá er það mikill misskilningur. Þjóðin sér hins vegar vel hvernig menn eins og Jón Magnússon og Kristinn beittu Trójuhestsaðferinni og eyðilögðu flokkinn á þeim tveimur árum sem þeir voru þar. Þetta eru menn sem Magnús fagnaði innilega við inngönguna í flokkinn og nú sér hann árangur gjörða sinna.
Nú vill hinn valdagráðugi Magnús, sem flokksmenn höfnuðu í prófkjörinu, kljúfa flokkinní enn smærri einingar með formannsframboði. Þetta er bara brandari sem andstæðingar flokksins gleðjast yfir.
Vonandi að Sigurjón og fleiri góðir menn innan flokksins geti komið vitinu fyrir Magnús.
Magnús Þór stefnir á formanninn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.3.2009 | 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Kosningar eftir rúmlega mánuð og Sjálfstæðismenn halda uppi ómálefnalegasta málþófi sem um getur í þingsögunni. Þetta lítur svolítið öðruvísi út nú en oft áður þegar Sjálfstæðismenn sökuðu, sérstaklega Hjörleif Guttormsson, um að halda uppi reglulegu málþófi ern þinlok nálguðust.
Nú hefur dæmið snúist algerlega við. Sjálfstæðisflokkurinn hraktist, vegna aðgerðarleysis og innbyrðis væringa, í stjórnarandstöðu og kunna með engum hætti að höndla þá stöðu á Alþingi eftir 18 ára gerspillta stjórnarsetu og þjóðina rúna trausti í samfélagi þjóðanna.
Og hvað er það sem rekur Sjálfstæðismenn til málþófs. Jú. Það að þeir þola ekki gerðar verði breytingar á dönsku stjórnarskránni við höfum mátt þola í alltof langan tíma. Sjálfstæðisflokkurinn, sem eru hrein og klár hagsmunasamtök sem lítið eiga skilið við stjórnmál, óttast stórlega að eftir réttlátar og nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni verði hinar ógeðfelldu stjórnaraðferðir þeirra og spillingarbandormur lýðnum ljósar. Meira að segja augljósar.
Það eina sem rekur Sjálfstæðismenn áfram í málþófinu er að þeir sjá fram á að varðhundur valdsins verði særður holundarsári komist aukið réttlæti á í landinu með breyttri stjórnarskrá. Gegnsæi, auðveldar þjóðinni að fylgjast með því að valdið verði í raun þrískipt, er eitur í beinum Sjálfstæðismanna. Þeir vilja óbreytt ástand og og allt vald á á einni hendi eins og það er nú. Ráðherravald.
Geir Haarde og Bjarni Benediktsson, formannsefni, halda því fram að stjórnlagaþing sé óþarft því Alþingi geti vel séð um breytingarnar. Þjóðin hefur séð í vetur hvers megnugt Alþingi í raun er. Það er einfaldlega handónýt afgreiðslustofnun fyrir ráðherravaldið. Fá lög eru samþykkt á lögjafarsamkundunni nema þau komi frá ráðherravaldinu. Alþingismenn Íslands ættu að skammast sín fyrir að taka sín fyrir að taka við launaumslaginu sínu með tilheyrandi bitlingasporslum um hver mánaðamót. Þeir hafa ekki unnið fyrir kaupinu sínu í mörg ár og hefðu allstaðar verið reknir úr vinnu hefðu þeir verið úti á hinum almenna vinnumarkaði. Og þar hafa Sjálfstæðismenn verið í fylkingarbrjósti og komið í veg fyrir að þeir sem vilja vinna og fara eftir sannfæringu sinni eru útskúfaðir meðal þingmanna.
Búsáhaldabyltingin barðist fyrir breytingum á stjórnarstefnu og réttlátara samfélagi. Það fáum við aldrei með Sjálfstæðisflokkinn í stjórnaráðinu.
Tilkynnt um þingrof á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.3.2009 | 06:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Youssi Benayoun hefur svo sannarlega hrokkið í gang hjá Liverpool. Kappinn búinn að skora þrjú mörk í deildinni auk þess sem hann hefur unnið eins og hestur og barist fyrir liðið.
Það tók Ísraelan nokkurn tíma að finna sig á Anfield. Þrátt fyrir einstaka góða leiki af og til hefur hann ekki náð að sýna sitt rétta andlit fyrr en í á þessu ári. Held að á engan sé óréttilega hallað í Liverpool þó maður tilnefni Benayoun besta mann liðsins í febrúar. Hann hefur sýnt góðan stöðugleika og er örugglega búinn að sannfæra Bentez um að hann er besti hægri kantur sem hann hefur völ á núna.
Markið í gær var öruglega mikill léttir fyrir Ísraelan og þá er ég smeykur um að Ngog hafi ekki verið minna ánægður. Hann átti fínan leik. Skorar mark og leggur upp annað. Og svo var honum skipt útaf þegar hálftími var eftir. Hvað gekk Benna til?
Benayoun: Mikill léttir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 4.3.2009 | 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alltaf gott að sjá þegar fólk iðrast og biðst afsökunar á athöfnum sínum eða aðgerðarleysi. Jafvel þó seint sé. Það sem vekur óneitanlega mesta athygli við afsökunarbeiðni Ástu Möller er að hún er að afsaka nokkuð sem formaður Hennar, Geir H. Haarde, telur enga ásæðu til að biðast afsökunar á.
Eftir því sem Geir segir hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki gert nein mistök. Sjálfur hefur hann ekki gert nein mistök. Alls ekki. Né heldur Árni Matthiesen eða Davíð Oddsson sem Geir hefur þráfalt lofað fyrir stjórnvisku sína í Seðlabankanum og það þrátt fyrir að sami Davíð noti hvert tækifæri til að segja þjóðinni að Geir hafi klikkað á vaktinni og ekki einu sinni nennt að taka til hendinni eftir sterk varnaðarorð frá Seðlabankastjóranum.
Af hverju er þá Ísland gjaldþrota ef hvorki Geir eða Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert nein mistök á 18 ára valdaferli sínum? Þingkonan, Ásta Möller, sér ekki gjörðir Sjálfstæðisflokksins með sömu gleraugum og Geir. Það er alla vega alveg ljóst.
Baðst afsökunar á mistökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.3.2009 | 06:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég hélt að það ætti að fara fram opið prófkjör hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Nú er komið í ljós að prófkjörið er í raun óþarft. Formaðurinn er búinn að koma málum þannig fyrir að það er í raun handvirk uppstilling í 3 efstu sætin. Lýðræðisást Ingibjargar Sólrúnar ríður ekki við einteyming í dag frekar er í gær.
Ingibjörg Sólrún er ekki, frekar en Davíð Oddson, tilbúin til að viðurkenna að hún steinsvaf á vaktinni sinni fyrir bankahrunið. Hún rumskaði þegar vekjaraklukka IMF hringdi en snéri sér á hina hliðina og HÉLT, en vissi ekki, að FME og SÍ, myndu vinna vinnuna sína. Þar á bæjum steinsváfu menn líka sem og í forsætis, fjármála og viðskiptaráuðneyti. Að sjálfsögðu átti Ingibjörg að sjá til þess að embættismennirnir væru vakandi í vinnunni. Myndi einhver sjómaður hafa geð í sér til að ráða sig í pláss hjá skipstjóra sem viðhefði svona vinnubrögð?
Björgvin viðskiptaráðherra varð fyrstur til að axla ábyrgð og segja af sér. Hann rak sauaðhjörðina úr FME áður en hann fór sjálfur. Þakka ber honum fyrir það. Geir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér aftur fyrir kosningarnar og búið er aðkoma vitinu fyrir Árna Matt sem tekur sér hvíld frá pólitíkinni. Davíð var rekinn en Ingibjörg Sólrún ætlar sér ekki að axla neina ábyrgð og vill sitja sem fastast. Hún gerir greinilega ekki sömu kröfur til sjálfrar sín og hún gerir til annarra sem gera alvarleg mistök. Slíkt getur formaður ekki leyft sér. Reyndar sagði Ingibjörg að einu mistök sín hafi verið hve seint hún sleit hjónabandi hennar og Geirs. Málið er að mistök hennar eru miklu alvarlegri. Vegna valdagræðgi hennar gleymdi hún athuga styrkleika "hússins" áður en hún flutti inn svo maður noti nú sömu líkingu og hún gerði í Fréttaukanum. Allir skipstjórar hafa klárt haffærisskírteini áður en þeir láta sleppa endunum.
Nú verða kjósendur Samfylkingarinnar að koma vitinu fyrir Ingibjörgu og bjarga trúverðugleika flokksins með því að strika hana út í prófkjörinu. Formaður sem ekki axlar ábyrgð á mistökum sínum og viðurkennir þau er ekki hæfur sem formaður og ber að víkja. Ef ekki sjálfviljugur þá með útstrikunarvaldi kjósenda.
Í leikþættinum sem Ingibjörg setti á svið í Fréttaukanum setti hún í raun einn allra hæfasta þingmann flokksins út í kuldann án þess að nefna nafn hennar. Nefnilega Valgerði Bjarnadóttur. Held að Ingibjörgu væri sæmst að endurskoða afstöðu sína og stíga niður af stallinum áður en það verður of seint fyrir hana. Þá getur hún lent í sömu aðstöðu og Davíð. Að enda glæsilegan feril með æruleysi og skömm.
20 bjóða sig fram fyrir Samfylkingu í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 2.3.2009 | 07:01 (breytt kl. 07:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Enn einu sinni dettur Liverpool niður á firlmaliðsplan. Og nú er liðið dottið niður í 3. sætið allt vegna þess að það er enginn stöðugleiki í liðinu. Eftir frábæran leik í Madrid á miðvikudag eru leikmenn LFC eins og firmalið frá þrotabúi Kaupfélagi Héraðsbúa.
Að tapa fyrir liði eins og Middlesbrough, þegar síðasta hálmstráið er enn sjánalegt til að bjarga meistaratittli, er að sjálfsögðu ófyrirgefanlegt. Sennilega væri hægt að kaupa 4 lið eins og Middlesbrough fyrir þann penig sem leikmenn LFC kosta. Þá á maður alla vega að hafa fullt leyfi til að ætlast til þess sigur vinnist þegar þó á útivelli sé.
Enn og aftur gerðist það hins vegar að Rafael Benitez vanmetur andstæðinginn. Að hefja leikinn með menn eins og Nabil El Zhar og Ryan Babel í jafn mikilvægum leik segir manni það að annað hvort ofmetur Benitez getu þessara manna eða hann er enn ekki farinn að skilja út á hvað enski boltinn gengur. Held reyndar að síðarnefnda tilgátan sé líklegri í ljósi þess hvernig liðið hefur tapað stigum og leikjum fyrir slakari úrvalsdeildarliðum og neðrideildarliðum í bikarkeppnunum.
En ekki ætla ég að kenna Rafa um hörmungar LFC. Þar á Rick Parry einnig stóran hlut að máli. Það er fyrir löngu komið í ljós að þeir tveir geta alls ekki unnið saman. Báðir vilja vera kóngar á Anfield þar sem aðeins er pláss fyrir einn kóng. Verð að segja að ennþá vildi ég heldur hafa Benitez í því hlutverki. Hann hefur aldrei fengið í raun tækifæri til að búa til það lið sem hann óskar sér. Það er nefnilega Parry sem kaupir leikmennina hvort sem Rafa vill þá eða ekki. Robbie Kean er gott dæmi um það. Þess vegna fékk hann aldrei almennileg tækifæri hjá Rafa.
Það er alveg ljóst að annar hvor þeirra Parry eða Benitez verður að fara frá Anfield og það fljótt. Nú er Meistaradeildin eina von Liverpool til að vinna titil í ár. Það getur vel gerst svo framalega sem við lendum ekki á móti Manchester United í úrslitaleiknum. Ferguson er enn og aftur búinn að búa til besta lið Bretlandseyja. Við getum unnið þetta lið í deildinni þegar við hittum þá þar á Old Trafford. Ferguson kemur ekki til með að leggja neina ofuráherslu á sigur þar enda með 7 stiga forskot nú og á auk þess leik til góða. En það verður erfiðara í Meistaradeildinni þar sem hlutverkin eru aðeins tvö. "Do or Die"
Chelsea í 2. sætið - Liverpool tapaði - Baulað á leikmenn Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.2.2009 | 18:03 (breytt kl. 18:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
- stebbifr
- adhdblogg
- alla
- adalsteinnjonsson
- arogsid
- pelli
- kaffi
- beggipopp
- bjarnihardar
- bokakaffid
- gattin
- disadora
- fannarh
- gislisig
- gretaulfs
- gretarro
- jyderupdrottningin
- gudrununa
- gthg
- hafsteinnvidar
- heidistrand
- hehau
- helgigunnars
- hermingi
- drum
- disdis
- ingabaldurs
- veland
- jakobk
- jonkjartansson
- jon-o-vilhjalmsson
- jonerr
- kalli33
- ktomm
- loopman
- st1300
- 7-an
- palmig
- krams
- ragnarb
- raggiraf
- ragnar73
- ridartfalls
- sng
- snorribetel
- vefritid
- thormar