Alltaf gott að sjá þegar fólk iðrast og biðst afsökunar á athöfnum sínum eða aðgerðarleysi. Jafvel þó seint sé. Það sem vekur óneitanlega mesta athygli við afsökunarbeiðni Ástu Möller er að hún er að afsaka nokkuð sem formaður Hennar, Geir H. Haarde, telur enga ásæðu til að biðast afsökunar á.
Eftir því sem Geir segir hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki gert nein mistök. Sjálfur hefur hann ekki gert nein mistök. Alls ekki. Né heldur Árni Matthiesen eða Davíð Oddsson sem Geir hefur þráfalt lofað fyrir stjórnvisku sína í Seðlabankanum og það þrátt fyrir að sami Davíð noti hvert tækifæri til að segja þjóðinni að Geir hafi klikkað á vaktinni og ekki einu sinni nennt að taka til hendinni eftir sterk varnaðarorð frá Seðlabankastjóranum.
Af hverju er þá Ísland gjaldþrota ef hvorki Geir eða Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert nein mistök á 18 ára valdaferli sínum? Þingkonan, Ásta Möller, sér ekki gjörðir Sjálfstæðisflokksins með sömu gleraugum og Geir. Það er alla vega alveg ljóst.
Baðst afsökunar á mistökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
- stebbifr
- adhdblogg
- alla
- adalsteinnjonsson
- arogsid
- pelli
- kaffi
- beggipopp
- bjarnihardar
- bokakaffid
- gattin
- disadora
- fannarh
- gislisig
- gretaulfs
- gretarro
- jyderupdrottningin
- gudrununa
- gthg
- hafsteinnvidar
- heidistrand
- hehau
- helgigunnars
- hermingi
- drum
- disdis
- ingabaldurs
- veland
- jakobk
- jonkjartansson
- jon-o-vilhjalmsson
- jonerr
- kalli33
- ktomm
- loopman
- st1300
- 7-an
- palmig
- krams
- ragnarb
- raggiraf
- ragnar73
- ridartfalls
- sng
- snorribetel
- vefritid
- thormar
Athugasemdir
Ég er ánægð ef fólk viðurkennir sín mistök og biður afsökunar. En Ingibjörg Sólrún biður ekki afsökunar og ætlar að bjóða sig fram sem formann hún gerði ekki neitt og það er sannarlega rétt hún gerði ekki neitt
gudrun (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 08:29
Já, Ásta er maður að meiri fyrir vikið, enda hef ég alltaf vitað að Ásta er mikill maður, hef þekkt hana tugi ára. Vildi bara að annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn nyti hennar góðu krafta. Well, svoleiðis er bara lífið og samfélögin, ekkert um það að segja.
Fyrirgefningarbeiðnir og hugtakið fyrirgefning eru dáldið snúin mál og ekki auðveld, hvorki í hugsun, meðhöndlun eða framkvæmd...
Gaman væri að diskútera það mál við gott tækifæri!
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 3.3.2009 kl. 21:18
Er alveg sammála þér með fyrirgefninguna. Ekki alltaf auðvelt finna henni stað. Væri sannarlega skemmtilegt umræðuefni.
Dunni, 4.3.2009 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.