Geir málaði flokkinn út í horn

Bæði þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar hafa haft það á orði síðan í nóvember að þeð beri að kjósa í vor.  Í stað þess að hlusta á samstarfsfólk sitt í ríkstjórninni kaus Geir að þumbast við og ljáði ekki máls á vorkosningum.

Forsætisráðherra sem ekki hlustar á samstarfsfólk sitt, hlustar ekki á þjóð sína og hlustar ekki heldur á varaformann sinn getur ekki verið búinn góðum leiðtogahæfileikum.  Í stað þess að þumbast við átti Geir vitaskuld að bretta upp ermarnar, skipta út sökudólgum og boða til vorkosninga.  Í millitíðinni hefðu Samfylking og Sjálfstæðisflokkur geta unnið af þrótti að endurreisn efnahagskerfisins og mætt til vel undirbúnir til kosninga og örugglega með meira traust í farteskinu en hún nýtur nú.

Geir Haarde getur engum öðrum en sjálfum sér kennt um hvernig komið er fyrir honum og flokki hans. Hann las stöðu sína vitlaust.  Því miður.


mbl.is Ingibjörg vill kosningar í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johann Trast Palmason

frábær pistill hjá þér og fullur sannleika það væri varla hægt að orða þetta betur.

Johann Trast Palmason, 22.1.2009 kl. 20:35

2 identicon

Vertu ekki með þetta bull.  ISG þvingaði Geir til að flýta landsfundi sjálfstæðisflokksins með hótun að ef ekki væri farið í ESB væri samstarfið á enda.  Fyrir utan að Skrípa eyddi 500 millum í órað (öryggisráð)  en það kemur ekki á óvart að samspillingarfólk sé heilaþvegið,  ja eða ef fólk hefur séð myndina Shaun of the dead eins og zombie liðið í henni.  Hvernig er með samspillinguna?  ISG flissar sig frá öllu,  Björgvin veit ekki neitt og það bókstaflega,  Iðnaðarráðherra gerir grín að mótmælum þrátt fyrir að hafa staðfest að hann hafi verið lítill aumingjans mótmælandi sjálfur og umhverfisráðherra treður samflokksráðherra sér um tær.  Góður flokkur :D

Haffi (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: Dunni

Hverskonar forsætisráðherra er það sem lætur þvinga sig til að flýta landsfundi flokks síns.  Það segir allt sem segja þarf um leiðtogahæflileikana.

Þetta lið, sem ekkert getur, er nú liðið sem Geir grát bað um að mynda sterka ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.   En engin ríkistjórn er sterkari en veikasti hlekkurinn og það er forsætisráðherrann.

Sorry to say því Geir er annars gæða drengur og góður KR-ingur

Dunni, 22.1.2009 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband