Skynsemi

"Ég fagna þessari ákvörðun seðlabankans mjög. Mér finnst hún mjög skynsamleg í ljósi aðstæðna.“

 Svo mælir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, um stýrivaxtalækkun Seðlabanki Íslands.

 Ég efast ekki um að jörgvin trúir á skynsemi þeirra í Seðlabankanum. Hún er sjáfagt til staðar. Hitt er annað málá þessi stýrivaxtalækkun kemur allt of sient og er alltof lítil.  Það bendir til að djúpst sé á skynsemi þeirra í bankanum.

En batnandi mönnum er best að lifa.  Þetta er eina lífsmarkið sem sést hefur í Seðlabankanum síðan hann rústaði efnahag þjóðarinnar með þjóðnýtingu Glitnis. Mér finnst tími til kominn að Björgvin fari nú að taka undir orð formanns síns og utanríkisráðherra um að fjarlægja beri þessa ofur skynsömu Seðlabankastjórn.  Eða er Björgvin kannski genginn í Sjáfstæðisflokkinn og ætlar að hasla sér völl í hinum fámenna  Davíðs-Geirs  armi frjálshyggjuflokksins?

  


mbl.is Skynsamleg ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Höfundur síðunnar má ekki líta fram hjá þeirri alþjóðlegu þróun sem átt hefur sér stað og skellur með hvað mestum þunga hér hjá okkur. Stjórnvöld ákváðu sameiginlega hvernig taka bæri á Glitni - og reyndar má benda á að nýr Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, Paul Krugman, taldi þessa leið skynsamlega. Við ráðum ekki við alheimsþróunina hér á landi - en vissulega hefur stærð bankakerfisins haft sín áhrif.

Teddi (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Mér þykir þú bara jákvæður í dag, elsku vin!! Mér sýnist þetta verða blátt áfram hlægilegt. Mér er þó sagt að mér vitrari mönnum í hagstýringum og vaxtafræðum, að þetta skipti máli. Ég finn eitthvað svo voðalega fyrir óþolinmæðistendensum mínum þessa dagana. Finnst engum nema mér þetta ganga alltof hægt?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.10.2008 kl. 17:49

3 Smámynd: Dunni

Teddi.   Höfundur síðunnar lítur alls ekki framhjá þeirri alþjóðlegu þróun sem átt hefur sér stað.  En af hverju voru Íslendingar verr í stakk búnir til að mæta heimskreppunni en nágrannalöndin? Ástæðan var einföld. Á Íslandi var óðaverðbólga. Stýrivextir voru þeir hæstu í heiminum. Og gjaldmiðilinn, krónan, var ónýt og stóð ekki undir efnahagskerfinu á eyjunni.  Þetta höfðu menn vitað lengi án þess að gera nokkuð.  Bankarnir höfðu hvað eftir annað beðið um að fá að gera upp í evrum en Seðlabankinn sagði nei.

PS  Krugman hefur hevrgi minnst á að þjóðnýting Glitnis hafi verið skynsamleg.

GAA   Þú ert ekki ein um að finnast aðgerðirnar ganga hægt.  Frændur okkar í olíu og konungsríkinu eru undrandi á gaufinu á stjórnvöldum á Íslandi sem ekki hafa slegið á þráðinn til  Jens þó hann sé marg búinn að bjóða fram aðstoð.  Þetta er bara ekki hægt.

Annars hringdi norsk vinkona mín á Íslandi í mig. Sú er kennari á topplaunumog nú fær hún útborgaðar 9000 NOK á mánuði eftir skatt.  Hér myndu útborguð laun vera í kringum 23000 NOK.

Dunni, 15.10.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband