Færsluflokkur: Bloggar

Fósturmorðingjar

Á síðustu þremur árum hefur fjölgun fóstureyðinga, fóstra sem greinst hafa með Downs syndrom, þrefaldast í konungs og olíuríkinu Noregi. Nær allar konur sem náð hafa 38 ára aldri láta eyða fóstri sínu greinist það með Downs syndrom einkenni.

Það er ekki að spyrja að því að kirkjunnar menn láta áhyggjur sínar óspart í ljós yfir þessum fósturmorðum eins og sumir kalla þessa aðgerð. En svo virðist vera að fleiri og fleiri norskar konur vilji ekki fæða börnin ef vart verður við einhverja fósturgalla á fyrri hluta meðgöngunnar.

Það eru svo sem ekki bara kirkjunnar fólk sem líkar illa þessi þróun því margir innan heilbrygðiskerfisins og fólk alment er ekki íkja hrifið þegar gangur lífisins er hrifsaður úr hendi skaparans og mannskepnan sjálf ákveður sköpunarverkin.

GÞÖ

http://orangetours.no/


ESB, Þorgerður Katrín og ÓL

Auðvitað eiga allar Evrópuþjóðirnar að standa saman og sniðganga setningarathöfnina. Þær kenna sig jú við frelsi, jafnrétti og bræðralag. 

Sjónvarpstöðvarnar, allar sem ein, ættu líka að sniðganga athöfnina. Slíkar aðgerðir eru eina vopnið sem lýðræðissinnar geta beitt gegn þjóðnýðingunum í Kína og annars staðar í heiminum.  Ef ekki er hægt að semja við kínversk stjórnvöld um almenn mannréttindi verður að beita þá hörðu. Og ekkert særir slíka leiðtoga meira en að kæfa athyglissýki þeirra þegar þeir þurfa að stæra sig af stóratburðum.

Að Þorgerður Katrín og Jens Stoltenberg ætli að heiðra fordómafulla og gerspilta ríkistjórn alþýðulýðveldisins er íslensku og norsku þjóðinni til skammar og skapraunar.

GÞÖ

http://orangetours.no/  


mbl.is Hvetja stjórnvöld ríkja ESB til að sniðganga setningarathöfnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólympíuleikarnir og Stórnmál

Það er ekkert nýtt að Ólympíuleikarnir og stjórnmál  sé tvinnað saman. Það hefur gerst allar götur frá árinu 1936.  Hvers vegna er þá þetta mikla upphlaup nú?

 

Þann 13 júlí 2001 var Kínverjum úthlutað 29. Ólympíuleikunum.  Þá brosti kínverska Ólympíunefndin sínu breiðasta og ætlaði aldrei að hætta að klappa saman lófunum, í beinni útsendingu um allan heim, frá úthlutunarathöfninni.  Alþjóða Ólympíunefndin sagði að Kína hefði orðið fyrir valinu vegna þess að þarlend stjórnvöld ætluðu snarbæta mannréttindi í landinu.

 

Síðast liðinn fmmtudag var svo mannréttindafrömuðurinn, Hu Jia, dæmdur í þriggja ára fangelsi í alþýðulýðveldinu fyrir svokallaða undiróðursstarfsemi. Hann hafði unnið sér það til saka að veita erlendum fjölmiðlum viðtöl og birta á netinu greinar sem ekki voru ríkistjón Kína að skapi.  Svo mikið hafa mannréttindi verið bætt í landinu.

 

Við lesum, heyrum og sjáum á hverjum degi hvernig væntanlegir gjestgjafar mestu íþróttahátiðar veraldarinnar hegða sér í Tíbet og sjónvarpi þegar þeri ljúga því að þjóð sinni að Ólympíueldinum sé hvarvetna fanganð af heimafólki þar sem hann fer um. Kínverjar hafa fengið sinn “spaugsama Ali”

  

Svo ætlum við að heiðra  þetta glæpahyski með því að senda okkar besta íþróttafólk á Torg Hins Himneska Friðar og Ólympíuleika í nágrenni þess.

 

Nokkarar staðreyndir um OL og stjónmál:

        1936 Þýskaland

Hitler fékk Ólympíuleikana þrátt fyrir að margir mótmæltu í nafni    kynþáttafordóma foringjans.

 

1956    Ástralía 

Egyptaland, Írak, Líbanon sátu heima í mótmælaskyni við innrás              Ísraela í Egyptaland.

Holland, Spánn og Sviss héldu sig líka heima til að mótmæla innrás Sovétríkjanna í Ungverjaland.

 

1968    Mexikó

Bandarísku spretthlaupararnir, Tommie Smith og John Carlos, voru reknir frá leikunum þegar þeir heisluðu með “Black Power” undir fánahyllingu leikanna.

 

    1972 Munchen

Ísraelarnir 11 teknir sem gíslar í Ólympíuþorpinu af skærluliðahópi sem krafðist þess að 234 palestínskum föngum í Ísrael yrði sleppt. Ekki var orðið við kröfunni og allri gíslarnir voru drepnir og einn þýskur lögreglumaður til viðbótar.

 

    1976 Kanada

    26 Afríkuþjóðir sátu heima í mótmælaskyni við að rúgbýlandslið     Nýja Sjálands lék landsleik við Suður Afríku.

   Íþróttafólk frá Taiwan varð að sitja heima því Kanada viðurkenndi    ekki landið sem sjálfstætt ríki heldur aðeins sem hluta af Kína.

 

1980 Moskva

Bandaríkin ásamt 61 landi mótmæltu innrásinni í Afganistan með heimasetu

 

1984 Los Angeles

Sovétríkin, Austur Þúskaland, Kúba og 14 önnur ríki svöruðu bandaríkjamönnum í sömu mynt og snðigengu OL

 

2008 Kína

Nú æskir stór hluti heimsbyggðarinnar að þjóðir heimsins sniðgangi OL í Kína af nákvæmlega sömu ástæðum og fólk hafði 1936. Kínversk stjórnvöld nærast á kynþáttafrodómum og mannréttindabrotum og mannsvonsku og það fer illa saman við Ólympíuhugsjónina

GÞÖ

http://orangetours.no/

 

       

  

 

 

  


Ringó og Liverpool

Ringó er án nokkurs vafa einn besti trommuleikari poppsögunnar. Það þýðir þó ekki að það sé bara viska sem hrýtur af vörum hans.  Hitt er svo annað að Liverpool saknar Bítlanna meir en þeir sakna borgarinnar.

http://orangetours.no/ 


mbl.is Höfuðlaus Ringo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm ára kennaranám og fjölgun í bekkjum

   Nú loksins hafa Norðmenn fundið stórasannleikann í skólamálum sínum.  Lengja skal kennaranámið í 5 ár og ekki útskrifa nema hæfa kennara.  Þ.e. fólk sem lýkur námi verður líka að hafa einhverja hæfileika til að miðla fróðleik sínum og speki til nemendanna.  Þetta gerðu Finnarnir og breyttu stígvélaverksmiðjunni sinni í verðmætasta fyrirtæki Evrópu.  Þá getum við það og gert Statoil að verðmætasta fyrirtæki í heiminum segja Norðmenn. 

Forsætisráðherra konungsríkisins ræddi um það m.a. í áramótaávarpi sínu að hann vissi oft á tíðum ekki hvað börnin hans hefðust að í skólanum sínum.  Hann sagði að óskipulega væri unnið. Alltof mikill tími færi í að skipuleggja starfið og sitja á fundum í stað þess að eyða meiri tíma í kennslustofunni með nemendunum. Þá taldi hann að með því að deila bekkjunum í smærri einingar þar sem hver hópur væri að vinna að mismunandi verkefnum, oft að eigin vali, gæti einfaldlega ekki gengið.  Blessuð börnin hefðu hvorki þann þroska eða sjálfsaga til að geta verið svo sjálfstæð í náminu.  Börn þurfa verkstjórn og læra rét vinnubrögð rétt eins og hver einast vinnandi maður. 

Jens Stoltenberg lét sér þetta ekki nægja heldur bætti við að miklu meira þyrfti að taka til hendinni í menntamálaráðuneytinu en gert hefði verið í langan tíma.  Hann sagðist sjálfur ætla bretta upp ermarnar og fara í gegnum hvað drengstaulinn, sem nú er menntamálaráðherra, væri eiginlega að bauka bak við skrifborðið sitt. Það eru ekki nema nokkrir mánuðir síðan hann rak fyrsta menntamálaráðherrann í ríkistjórn sinni frá völdum fyrir lélegan árangur. 

Þá hafa forráðamenn norska Vinnuveitendasambandsins lýst áhyggjum sínum yfir öllum ónothæfu tossunum sem útskrifast úr norskum grunnskólum.  Fjórðungur þeirra flosnar upp úr framhaldsnámi á fyrsta vetri og fleiri fylgja á eftir eftir því sem árunum fjölgar.  Þessir vesalingar, sem ekki ná sér í nothæfa  undirstöðu fyrir þáttöku í atvinnulífinu, lenda oftast á örorkubótum löngu á undan forledrum sínum og jafnvel á undan öfum sínum og ömmum.Það gefur auga leið að í stað þess að verða nýtir þjóðfélagsþegnar í góðum stöðum í stórfyrirtækjunum eru þessir vesalingar orðnir baggi á samfélaginu um leið og þeir hefja skólagöngu 5 ára gamlir. Vinnuveitendasambandið vill að allt verði gert til að hressa upp á skólanna með betri kennurum og markvissara námi. 

Og ekki lét stuðningurinn við hugmyndir  Vinnuveitendasambandsins á sér standa.  Prófessor við Verslunarháskólann, BI, lýsti þeirri bráðsnjöllu hugmynd í útvarpi í gær launa ætti kennara eftir árangri í starfi.   Þetta er ekki alveg ný hugmynd en það sem er nýtt hjá prófessornum er að hann kom með hugmynd um útfærslu á tillögu sinni.  Þegar starf kennarans er metið til launa ber að taka tillit til árangurs nemenda hans á “landsprófum” yfir einhvern tíma.  Síðan á skólastjóri að skoða niðurstöðuna og meta árangurinn og færa kennarana til í launastiganum eftir gengi nemenda sinna. 

Ég hugsaði með mér þegar ég heyrði þessa speki á leið í skólann í morgun. “Hellvíti að þessi frábæra röðun í launaflokka kennara hafi ekki verið komin á Íslandi árið 1973.”


Lögreglumaður sem drap mann við handtöku kennir lögreglunemum handtökutækni



 

 

Annar lögreglumannanna, sem handtók Nigeríumanninn Eugene Obiora, í Þrándheimi í fyrra, með þeim afleiðingum að hann kafnaði, kennir núna handtökutækni við norska Lögregluháskólann.  Svo segir Abid Raja, pakistasnkur lögfræðingur Obiorafjölskyldunnar sem hefur kært lögreglumennina fyrir morð. 

Það er kannski ekkert einkennilegt við að meintur morðingi Nigeríumansins kenni verðandi lögregluþjónum réttu handtökin í ljósi þess að hann fékk mikið hól hjá formanni lögreglufélagsins fyrir frammistöðuna við handökuna á Obiora. 

Sem betur fer eru ekki allir Norðmenn á sama máli og flestum finnst aðsjálfsögðu fáranlegt, ef satt er, að maður sem ekki getur sjálfur haldið sigvið viðteknar öryggisvenjur við handtöku kenni nemum í lögregluskólanumfangbrögðin sem beita á. 

Obiramálið fær mikla umfjöllun í pressunni um þessar mundir þar sem rannsókn á handtökunni stendur nú yfir.  Dagblaðið Klassekampen hafði samband við Lögregluháskólann og spurði hvort satt væri að meintur morðingi kenndi handtökutækni við skólann.  Skólayfirvöld vildu hvorki neita því né játa. 

Þeir sem urðu vitni að átökunum hafa tjáð sig á þann hátt að þeir sjái eftirþví að hafa ekki gripið inn í átökin þar sem augljóst var að hverju stefndi.Þeir segja að lögreglumaðurinn hafi sagt að hann "kæfði hann" meðan áátökunum stóð.Vitnin sögðu einnig að Obiora hafi grátbeðið lögreglumennina um að þyrma lífi sínu. 

Hef eiginlega ekki geð í mér til að koma með frekari lýsingar á atburðunum í Þrándheimi þar sem lögreglumennirnir gripu algerlega óbeðnir inn í deilu milli Obiori og öryggisvarða í einni af stofnun bæjarins. Hins vegar kemur í ljós í næstu viku hvort lögreglumennirnir verði dregnirfyrir dómstóla ákærðir fyrir morð á Nígeríumanninum. 

Sagan af morðinu á Eguene Obiora er umhugsunarverð og enn eitt dæmi um  lögregluofbeldi.  Það segir ekkert um að allir lögreglumenn séu nýðingar.  En það setur ljótan blett á störf lögreglunnar. Einkum innra eftirlitið sem ekkert fann athugavert við handtökuna. Er ástandið betra eða verra í íslensku lögreglunni?


Engin indíáni í norskri gröf

Heimsbyggðin hrökk svo sannarlega við í gærþegar fréttist af að inka-bein  hefðu fundist í fornri gröf í Sarpsborg í gær.

En fréttamenn NRK hlupu heldur betur á sig þegar þeir settu fréttina í loftið.  

 Vissulega fannst inkabein í gröfinni í Austfold. Og það er fyrsta inkabeinið sem fundist hefur í Noregi.  En þetta inkabein hefur ekkert með indíánaflokkinn að gera.  Þetta er sérnaskt bein sem finnst í höfðinu ca 6% mannkyns. 

Inkabein hafa fundist í nokkrum dönskum gröfum. En sem sagt.  Þetta var fyrsta bein sinnar tegundar í Noregi og  fréttamenn  norska  sjónvarpsins hlupu því all verulega á sig og göbbuðu aðra fjölmiðla upp úr skónum sem átu þetta upp eftir þeim.


mbl.is Inkar í norskri gröf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blokkflauta, islam og andskotinn

Þegar maður starfar í fjölmenningarskóla þar sem flestir nemendur eru börn islamsks flóttafólks getur eitt og annað gerst sem maður á ekki að venjast í íslenskum grunnskólum. Margt er skemmtilegt meðan annað ern nokkuð sem maður vill helst ekki reyna.  Ætla að deila með ykkur einni skondinni sögu úr tónlistakenslu.

Nú er þar til máls að taka að í föstumánuði múhameðssafnaðanna, ramadan, héldum við uppi hefðbundinni tónlistarkenneslu í skólanum. Samkvæmt kennsluáætlun ársins var komið að því að börnin áttu að læra á blokkflautu og kynnast öðrum tréblásturhljóðfærum fornum og nýjum frá felstum heimshlutum. En þá kom nú babb í bátinn.

Tónlistarkennarinn fékk bréf frá imaminum í marókóskri mosku, sem stendur á skólalóðinni, þar sem farið var fram á að blokkflauta yrði ekki dregin fram meðan á ramadan stæði. Ástæðan var að blokkflauta er hljóðfæri djöfulsins og alls ills. Í hvert skipti sem tónn heyrðist úr blokkflautu fóru púkar af stað og imamin vildi forða börnunum frá áreit andskotans í helgasta mánuði ársins.

Nú voru góð ráð dýr. Hvorki vildum styggja hið marokanska trúsamfélag eða hinn volduga allah. En við vildum nú samt fá að nota blokkflautuna svo skotið var á hálfgerðum krísufundi þar sem við réðum ráðum okkar.

Ég kom með þá bráðsnjöllu hugmynd um að við mættum sjáfsagt nota blokkflautuna bara ef við hefðum opna glugga á tólistarstofunni. Þá myndu púkarnir örugglega verða frelsinu fegnir og fljúga út um gluggann.

Hugmyndin var borin upp við islamska kennarana við skólann, sem flestir eru í frjálslyndari kantinum og sýndist þeim að þetta ætti að geta gengið.

Tore tónn skrifaði imaminum frá Marokko bréf og sagði frá hinni stórgóðu hugmynd Íslendingsins. Imamen var ekki eins hrifinn og við í skólanum. Hann sagði þvert nei. Ef púkarnir geta flogið út um gluggann komast þeir líka inn um hann. Og þar sem þeir eru elskir að tónum hljóðfæri hins illa væri mjög líklegt að þeir færu ekki út úr kennslustofunni meðan tónar blokkflautunnar liðu um loftið. Og ef við ætluðum að halda fast við að kenna á blokkflautu á ramadan myndu margar fjölskyldur taka börn sín úr skólanum þá daga sem þau ættu að vera í tónlistarkennslu. Það væri óforsvaranlegt að börnin væru árteitt af sonum djöfulsins á hinum heilaga ramadan.

Við pökkuðum blokkflautunum niður og frestuðum kennslu á þetta annars ágæta hljóðfæri þar til eftir jólafrí.

 


Sorglegur atbuður


Aðfaranótt þriðjudags hringdi maður nokkur á lögreglustöðina í Ósló og sagði að kona sín lægi örend í rúminu.  Er lögreglan kom á vettvang tók 30 ára gamall Afgani á móti þeim og sagði að hann hefði orðið konu sinni að bana.

 

En það var ekki bara hin 25 ára gamla kona mannsins í húsinu.  Þau áttu nefnilega 18 mánaða gamalt barn sem nú er munaðarlaust þar sem faðirinn var að sjálfsögðu fluttur á lögreglustöðina og eftir stutta skýrslutöku settur í varðhald.

 

Atburðir sem þessi eru ekkert óalgengir meðal nýbúa í Noregi.  Oftast eru það muslimar sem eiga hlut að máli. Þá er það yfirleitt svokölluð heiðursmorð sem um er að ræða og þá í tengslum við að einhver dóttir og eða systir hefur orðið  ástfangin í kristnum villutrúarmanni. Þá er voðinn vís því islamskar stúlkur hafa ekki leyfi til að giftast kristnum mönnum eða gyðingum þó svo að islamskir karlmenn geti valið sér konuefni úr flestum trúsamfélögum.

 

Hinn ólánsami eiginmaður og morðingi konunnar kom sem flóttamaður frá Afganistan til Noregs árið 2001.  Þremur árum seinna fékk kona hans leyfi til að koma til landsins á þeirri forsendum að um sameiningu fjölskyldunnar væri að ræða. Þeim verður síðan barns auðið fyrir hálfu öðru ári síðan.  Og nú er þessi fjölskylda ekki til lengur. Konan dáin, maðurinn bak við lás og slá og barnið í umsjá barnaverndarinnar.

 

Enn er ekki komið í ljós af hverju maðurinn tók lífið af konu sinni. En eitt er víst að þau hafa alls ekki haft það neitt sérlega gott, þrátt fyrir velvilja flestra Norðmanna. Flóttafólk frá Afganistan er nefnilega alls ekki eins og venjulegir innflytjendur.  Flestir hafa búið við kúgun og ofbeldi þarlendra stjórnvalda árum saman og vita varla hvað það er að hafa það notalegt á heimili sínu eða annars staðar í samfélaginu. Afganistan er ekki velferðarsamfélag eins og við þekkjum best sem búum á Norðurlöndum.

 

Undanfarið hafa um þrír tugir Afgana að mótmæla, fyrir framan Stórþingið, að þeir fá ekki hæli í Noregi. Það á að senda þá til Suður-Afganistan þar sem þeir segja að ekkert bíði þeirra annað en dauðinn. Norsk stjórnvöld segja að það sé bara vitleysa. Þau segjast vera búin að kanna ástandið og það sé alveg öruggt fyrir flóttafólkið að snúa heim núna.  Fyrir tveimur dögum, eftir að lögreglan hafði handsamað mótmælendurna til þess að senda þá til síns “heima”, bárust svo fréttir um að margir Afgnana hefðu kastað hinni islömsku trú og tekið kristna.  Þá þurfti að endurmeta stöðuna.  Sérstaklega í ljósi orða forseta Afganistan sem staðfesti að landið væri islamskt land og þannig yrði það árfram. Þeir sem hefðu hugsað sér að breyta því myndu engu týna nema lífinu.

 

Eftir þessi orð forsetans og beiðni biskupsins í Ósló ákváðu norsk stjórnvöld að fresta því að kasta flóttafólkinu út úr konungsríkinu. Aftur var Afgönunum komið fyrir í nánast lokuðum “fóttamannafangabúðum” þar sem þeir bíða ráðviltir eftir að norskstjórnvöld ákveði örlög þeirra.   

 

Á sama tíma og Nroðmenn vilja senda flóttafólkið heim, til suður Afganistan, neita norsk stjórnvöld að senda herstyrk til þess landshluta til að hjálpa meðbræðrum sínum í NATO að halda uppi lögum og reglu í landshlutanum. Þeir segja nefninlega að ástandið þar sé alltof ótryggt fyrir hermenn sína.  En það er í lagi að senda vopnlaust fóttafólkið í opinn dauðann fram fyrir byssukjafta skæruliðanna.

 

Er það nema von að blessað fóttafólkið ruglist í ríminu og fremji voðaverk í örvinglan sinni þegar hinir svokallaðir velgjörðamenn þeirra tala tveimur tungum og út og suður.      


« Fyrri síða

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband