Færsluflokkur: Bloggar
Las það í norska Dagblaðinu í kvöld að íslenski dúettinn, The Boys, sem sló í gegn í Noregi í byrjun 10. áratugar síðustu aldar séu endanlega hættir.
Bræðurnir Arnar og Rúnar, synir Dóra og Eyrúnar, gáfu út 3 plötur á árunum 1993 - 1995. Fyrsta platan náði gullplötusölu bæði í Noregi og á Íslandi.
Frekari upplýsingar um The Boys eru á linknum, http://www.kjendis.no/2008/07/20/541277.html
Bloggar | 20.7.2008 | 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Loksins kom jákvæð frétt frá sjávarútveginum. Góð humarvertíð með góðu verði fyrir krabban og Dóri í Vík er ánægður. Þorsteinn Gíslason verður bundin við bryggju í Grindavík, skveraður og gerður klár fyrir næsta úthald.
Ætla rétt að vona að Dóri brosi líka eftir haustvertíðina.
Bloggar | 20.7.2008 | 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eftir að hafa séð sólsetrið af svölunum hjá GAA varð ég bara að sýna ykkur mánaskinið sem ég nýt á hverju kvöldi á pallinum við hjólhýsið á Glommubökkum. Ef vel er gáð sést ein lítil stjarna á himnum sem og ljóstúyra á ljósastaur á suðurbakka fljótsins.
Tók myndina kl 01:10 aðfararnætur laugardagsins 19. júlí 2008
Bloggar | 20.7.2008 | 15:54 (breytt kl. 15:59) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um 40% af öllum manndrápum í Noregi er framkvæmd med hnífstungum. Oftast eru það búrhnífar sem gripið er til þegar einhver skal líflátinn. Sú var einmitt raunin í Bærum í síðustu viku þegar 18 ára gamall strákur drap besta vin sinn í reiðiskasti.
Torleif O. Rognum, prófessor við Réttarlækningastofnunina, segir það ekki auðvelt að finna ráð til að stemma stigu við voðaverkunum meðan hver sem er hefur svo auðveldan aðgang að hnífum sem raunin er í samfélaginu.
Préfessorinn segir að það gerist alltof oft að fólk leysi deilur sínar með hjálp hnífa sem æði oft enda með drápi. Hann segir að full ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af því hve algengt það er orðið að menn gangi með hnífa á sér í þeim tilgangi að verja hendur sínar ef á þá er ráðist. Samt er það í raun bannað að ganga dags daglega með hníf á sér í landinu.
Tölfræðin í Noregi segir okkur að dráp með hnífi voru sjaldgjæf á 7. áratug síðust aldar. Á áttunda áratugnum fjölgaði morðum í landinu og mest fjölgaði þeim morðum þar sem hnífur var morðvopnið. Frá 9. áratugnum hefur fjöldi morða verið nokkuð stöðugur eða um eitt morð á viku. En fjöldi hnífamorða eykst jafnt og þétt.
Prófessor Rognum finnst hnífsmorð með því ódrengilegra sem hann sér á krufningaborðinu. Hann segist eiga bágt með að skilja að í samfélagi sem eyði tugum milljarða í að bæta heilbrigðisþjónustuna í þeim tilgangi að bjarga bæði lífi og heilsu fólks finnist menn sem stinga meðbræður sína með hnífum til þess að ryðja þeim úr vegi vegna misklíðar.
Rognum segir líka að vegna bættrar bráðaþjónustu um allt landið takist nú orðið að bjarga miklu fleiri sem verða fyrir hnífstungum en áður. Samt fjölgar þeim sem láta lífið eftir hnífstungur. Hér þarf mikið átak til hugarfarsbreytingar í samélaginu.
En þrátt fyrir að bannað sé að ganga með hnífa á sér þá er ekki hægt að banna fólki að hafa hnífa heima hjá sér. Þess vegna verða foreldrar, skólar og aðrar uppeldisstofnanir að ala börn upp í umburðarlyndi og að bera það mikla virðingu fyrir mannslífum að þau grípi ekki til hnífa verði þeim sundurorða við einhvern á förnum vegi.
Því auðveldari sem aðgangur er að vopnum, þeim mun meiri hætta er á að fólk grípi til þeirra í æðiskasti segir Torleif O. Rognum.
Bloggar | 20.7.2008 | 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verð að viðurkenna að nú eru nokkur ár síðan ég hef ekið þjóðveg 1, hringveginn svokallaða. Mér varð hugsað til þjóðvegakerfisins á eyjunni okkar þegar ég las um slysið á Seyðisfirði.
Einhvern veginn held ég að lítið hafi hafi gerst í vegabótum á þeim 3 árum síðan ég settist upp í bíl og ók norður til Húsavíkur. Vegirnir á Íslandi eru eins og asnaslóðar í norðan verðri Afríku og Asíu í samanburði við flest Evrópuönd.
Það er með ólíkindum að lönd eins og Ísland og Noregur, sem þreytast aldrei að á að segja frá ríkidæmum sínum, skuli vere með eitthvert lélegastu þjóðvegi í Evrópu.
Á Íslandi finnast örfáir kílómetrar með 4 akreina vegum. Í Noregi eru komnir á þriðja hundrað km með 4 akreinum meðan að Albanir hafa lagt rúmlega 700 km hraðbrautakerfi.
Við þurfum ekki að vera hissa á afhverju við erum í fararbroddi þegar um fjælda umferðarslysa er að ræða í álfunni.
Bloggar | 20.7.2008 | 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Upp er komin umræða í konungsríkinu um að banna reykingar undir berum himni þar sem fólk safnast saman.
Eins og flestir vita var Noregur eitt af fyrstu löndum heimsins sem bannaði reykingar á veitingastöðum. Lögin um reykingabannið gengu í gildi 1. júní 2004. Reynslan af reykingabanninu á veitingastöðunum hefur verið svo góð að nú er komin af stað umræða um að banna reykingar víðar en bara á veitingastöðum. Nú hyggjast Norsarar, til að byrja með, banna fólki að reykja á íþróttavöllum, járnbrautarpöllum, strætóstoppistöðvum, baðströndum og í almenningsgörðum.
Almennt vilja þeir sem berjast gegn tóbaksbölinu banna reykingar á öllum stöðum þar sem fólk safnast saman. Það stefnir því í að Noregur verði reyklaust land innan nokkurra ára.
En hvernig hafa reykingarlögin virkað síðan þau voru samþykkt á Stórþinginu. Kannanir sýna að nú eru um 80% Norðmanna ánægðir með lögin. Tóbakssala í konungsríkinu hefur minnkað um 17% síðan lögin gengu í gildi fyrir 4 árum. Samkvæmt könnunum er mikill meirihluti þeirra sem reykja illa launað og lítið menntað landsbyggðarfólk sem hefur lífsviðurværi sitt af vinnu sem ekki krefst fagmenntunnar.
Karl Eric Lund heitir sá sem mest hefur rannsakað hvernig reykingarbönn hafa þróast bæði í Noregi og í öðrum löndum. Han segir þróunina vera þá að reykingar séu bannaðar á sífellt fleiri stöðum. Hann bendir á land eins og Bandaríkin, vöggu sígarettunnar, þar sem þróunin er sú að fólk fær ekki lengur að reykja hvar sem er í því annars frjálslynda samfélagi. Hann telur að reykingafólk verði að sýna meiri tillitsemi þegar það kveikir sér í sígarettu innan um margmenni. Það sé alla vega ekki til of mikils mælst að það dragi sig út úr hópi þeirra sem ekki reykja á brautarpöllunum og baðströndunum.
Að sjálfsögðu eru ekki allir Norðmenn á því að banna reykingar undir berum himni. Formaður heilbrigðisnefndar Stórþingsins, Harald T. Nesvik, finnst nóg komið af boðum og bönnum á reykingarfók og segir að það séu takmörk fyrir hve langt sé hægt að leggja reykingafólk í einelti. Aðrir eru á þeirri skoðun að þeir sem veikjast af reykingum eigi ekki skilið að fá læknisaðstoð greidda af skattpeningum þeirra reyklausu.
Bloggar | 20.7.2008 | 14:16 (breytt kl. 16:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ekki spurning. Okkar framlag var einfaldlega flottast.
Lagið var ok og flutningurinn frábær. Var líka ánægður með norsku Maríu en flutningur hennar var ekki eins lifandi og hjá okkar fólki.
En mikið andskoti voru mörg lagana hundleiðinleg.
Bloggar | 24.5.2008 | 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | 24.5.2008 | 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mér varð að óskinni þrátt fyrir að andsk.... Norsararnir reyndu að hafa af mér keppnina með öllu.
Þeim tókst það ekki
Bloggar | 22.5.2008 | 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Haldiði að ég hafi ekki klikkað svona gersamlega á júróvisjón í kvöld. Var búinn að planta mér í húsbóndastólinn, með rauðvínsglas, með NRK1 á skjánum og beið spenntur eftir íslenska júróinu.
En hellvvv.......... Norsararnir sviku mig gersamlega. Þeir eru náttúrulega búnir að koma sér áfram og þá eru þeir ekkert að spandera aðastöðinni á aulana sem eftir eru.
Ég gafst auðvitað upp á að bíða eftir júróinu og fór a ð flakka milli stöðva. Haldiði ekki að ég, með rauðvínsglasið í hendi, detti ekki inn í júróið þar sem verið er að syngja um Vodka.
Ég hvolfdi að sjálfsögðu restinni af því rauða í mig og hentist eftir Smirnoff gamla. En allt kom fyrir ekki. Þegar að talningunni kom sá ég að okkar fólk sté fyrst á svið. Ég bölvaði frændum okkar fyrir að gabba mann svona herfilega með því að færa keppnina frá NRK 1 yfir á Þristinn.
Nú bíð ég eftir úrslitunum. Vona að viðkomumst áfram. Ef það gerist hvolfi ég í mig afgangnum úr Vodkaglasinu og fæ mér íslenskt BRENNIVÍN og HARÐFISK FRÁ SPORÐI Á ESKIFIRÐI
Bloggar | 22.5.2008 | 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
-
stebbifr
-
adhdblogg
-
alla
-
adalsteinnjonsson
-
arogsid
-
pelli
-
kaffi
-
beggipopp
-
bjarnihardar
-
bokakaffid
-
gattin
-
disadora
-
fannarh
-
gislisig
-
gretaulfs
-
gretarro
-
jyderupdrottningin
-
gudrununa
-
gthg
-
hafsteinnvidar
-
heidistrand
-
hehau
-
helgigunnars
-
hermingi
-
drum
-
disdis
-
ingabaldurs
-
veland
-
jakobk
-
jonkjartansson
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonerr
-
kalli33
-
ktomm
-
loopman
-
st1300
-
7-an
-
palmig
-
krams
-
ragnarb
-
raggiraf
-
ragnar73
-
ridartfalls
-
sng
-
snorribetel
-
vefritid
-
thormar