Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Það var eins og blessuð skepnan skildi

Bæði er það gott og ekki síður ánægjulegt að sjá að páfagarður lætur grimmdarverkin á Gaza til sín taka með beinskeyttar hætti en oft áður.  Friðarráðherran sjálfur, Renato Martino kardináli, fer nánast með órfriði, í kjaftinum, gegn Ísrael og fjöldamorðum þeirra í útrýmingarbúðunum á Gaza.

Það er vel að æðsti yfir maður kaþólsku kirkjunnar tekur afstöðu og fordæmir glæpamenn svo eftir sé tekið.  Páfinn lifi!!!

 Þá eru það bara tvær stórþjóðir í heiminum sem ekki treysta sér til að fordæma glæpamennsku gyðinganna á Gaza.  Það eru Bandaríkin og Ísland.


mbl.is „Allsherjar útrýmingarbúðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðjón góður ræðukóngur

Það er alltaf gott þegar ræðukóngar Alþingis eru menn sem hafa eitthvað að segja.  Guðjón Arnar er tvímælalaust einn þeirra.  Hann stendur vörð um gömul og góð gildi eins og trúmennsku og heiðarleika auk þess sem hann hefur heilbrigða nýtingu aðalauðlindar þjóaðrinnar, fiskikvótann, að leiðarljósi í baráttu sinni fyrir réttlátara samfélagi á Íslandi.  Get ekki ímyndað mér að  veðsetning kvótans hefði hafnað í þýskum banka hefði Guðjón haft eitthvað um málið að gera.

Mér finnst dálítið sorglegt að Jón Bjarnason skuli vera meðal þeirra sem eyða mestum tíma í ræðustóli.  Hann ætti eiginlega að vera vinnudýr í þingflokki VG eins og sá mæti maður Geir Gunnarsson var hjá Alþýðubandalaginu á sínum tíma.  Jón hefur nefnilega, eins og Guðjón, oft mikið að segja og greinilegat að hann vill standa vörð um réttlæti í samfélaginu.  En hann er bara svo einstaklega leiðinlegur ræðumaður.  Ég, sem setið hef hundtryggur fyrir framan sjónvarpiðog fylgst með umræðum í þIngini í haust, næ nánast aldrei samhenginu í því sem Jón er að segja.

Ég skil ekki af hverju Einar Már hefur misst málið.  Hann var aldeilis ekki mállaus hér á árum áður.

 


mbl.is Guðjón Arnar nýr ræðukóngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush ekki allur þar sem hann er séður

Það sem er merkilegast við þessa mynd er að á henni eru sennilega þrír slökustu forsetar Bandaríkjanna.  Feðgarnir og Jimmy Carter. 

Þetta boð er eitt af fáu sem Bush hefur afrekað í forsetatíð sinni. Þetta er allavega skemmtileg mynd og söguleg. Sama má segja um forsetaflokkinn frá 1981.

En mikið held ég að heimsbyggðinni létti að hálfu mánuði liðnum er litli Bush kveður.

 


mbl.is Sögulegur hádegisverður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður og hungraðir hestar

Eiður Guðnason var góður fréttamaður þegar sjónvarið var enn í sauðalitunum. Hef þá trú að margir hafi séð eftir honum af skjánum.

Mér er alltaf minnisstætt þegar Eiður taldi sig hafa komist frétta efni um dýranýðslu vegna hrossagöngu í annað hvort Engey eða Viðey. Eiður fór út í eyjuna með tökumann með sér og festi á filmu hross sem hann sagði illa haldin og horuð þar sem þau hefðu llítið að éta.  Í fréttinni veifaði hann vel nagaðri rekaspýtu til staðfestingar á því að hrossin væru nær hungurmorða og gerðu sér því rekavið að góðu sem æti.

Nú vita allir sem haldið hafa hesta og skepnur almennt að hvergi er betri vetrarhagi en í gróðursælum eyjum meðþaramikilli fjöru.  Hestar elska að fá spýtur að naga þó þeir sú pakk saddir. Að naga spýtu hefur jafn róandi áhrif á hesta og bók hefur á mann sem les sér til hugarhægðar.

Því má bæta við að Eiður var vinsæll sendiherra í Noregi 


mbl.is Eiður Guðnason hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skotinn en ekki dauður

Hagræðing ætti alltaf að vera af hinu góða.  En því miður er það oft svo, einkum þegar hið opinbera hyggst spara peninga. Sparnaðurinn í heilbrigðiskerfinu núna virðist ekki vera með öðrum hætti, embættismenn með puttana í tilfæringunum en stjórnendur hilbrigðisstofnananna ekki hafðir með í ráðum.   Þeir fá bara tilskipanir frá ráðherra um að svona skuli hlutirnir verða.

Þetta er náttúrulega hrokafullir stjórnarhættir og dæmdir til að mistakast.  Þó einhver hagræðing gæti legið í ákvörðununum eru mistakst ær vegna óánægju starfsfólks.  Það fer nefnilega alltaf best á því að koma breytingum á með lýðræðislegum hætti.  Það getur tekið lengri tíma en það er alltaf farsælla en einræðislegumtilskipunum að ofan.

Skilvel reiði starfsfólksins á St. Jósefsspítalanum.  Hvers vegna á að láta það ferðast til Keflavíkur þegar það getur unnið vinnuna sína í Hafnarfirði?


mbl.is Eins og maður hafi verið skotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotinn laus í Framsókn

Svo virðist vera sem kálfarnir hafi verið duglegir að smala jafnöldrum sínum í partýið í Reykjavíkurfjósinu í gærkvöldi. Gömlu törfunum og einhverjum kúm líka, þótti gauragangurinn fara út yfir öll velsæmismörk.  Ungneytin tóku sig til hnýttu gömlu gripina saman á hölunum , dönsuðu í krinugm þá og sáu til þess að þeir voru flæmdir af bestu básunum.

Eftir að dansi ungneytana lauk tóku gömlu gripirnir að baula og bauluðu hástöfum um illameðferð á sér og að ungneytin hefði yfirtekið flokkinn með fjandsamlegum hætti.   Í staðin fyrir að gleðjast yfir fjölgun gripa í fjósinu fordæma gömlu tarfarnir, með Jón Sig sem forystutarf, atahfnasemi og elju kálfanna sem ætla sér betri uppskeru og betra hey en komið hefur í hlöðuna árum saman.

Svona er bara lífið í Framsókn.  Þar eru heilu hnífasettin á lofti og já jafnvel gaflar líka á leið í bakið á félögunum.  Engin veit hver á hvaða hníf eða gaffalog engin veit hver stakk hvern.  Stefnumálin eru aukatriði.  Nautaatið er aðal atriðið.  Við sem stöndum hjá njótum atsins.

Og nú getur Bjarni Harðar kannski bætt titlinum, nautabani, við hliðina á bóksalanum.  alla vegagerði hann það eina rétta í stöðunni. að koma sér út úr spilltasta fjósi Íslands í dag.


mbl.is Fjandsamleg yfirtaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestu rokksöngvarar sögunnar

Netmiðillinn, Planet Rock, hefur nú látið neytendur sýna kjósa bestu rokksöngvara sögunnar.Dómurinn féll á þann veg að Led Zeppelin goðið Robert Plant er kosinn besti rokksöngvari allra tíma. Í öðrusæti var Freddie, sálugi, Mercury og Free söngvarinn, Paul Rogers hlaut þriðja sætið.    Persónulega finnst mér hann skemmtilegri en þeir sem á undan honum komu en svona er þetta.  Misjafn er smekkur manna.

 

En hérna fylgir listi yfir þá 40 bestu að mati lesenda Planet Rock 

1  Robert Plant

2 Freddie Mercury    

3  Paul Rogers  Free

 

4 Ian Gillan  Deep Purple

5. Roger Daltray  The Who

6  David Coverdale

 

7  Axl Rose

8  Bruce Dickinson

9  Mick Jagger

10  Bon Scott

11  David Bowie

12  Jon Bon Jovi

13  Steven Tyler


 

14  Jon Anderson

15  Bruce Springsteen

 

16. Steve Perry
17. Ozzy Osbourne
18. Bono
19. Peter Gabriel
20. James Hetfield21. Janis Joplin
22. Brian Johnson
23. Roger Chapman
24. Phil Lynott
25. Glenn Hughes
26. Joe Cocker
27. Jim Morrison
28. Alex Harvey
29. Alice Cooper
30. Ronnie James Dio
31. Sammy Hagar
32. Meat Loaf
33. Rob Halford
34. Geddy Lee
35. Biff Byford
36. David Gilmour
37. Fish
38. Dave Lee Roth
39. Chris Cornell
40. Neil Young


Flugfélag & Ferðaskrifstofa

Það reyndist ferðaþjónustunni afar dýrkeypt á sínum tíma þegar Flugleiðir voru bæði flugfélag og ferðaskrifstofa.  Flugfélagið, sem ferðaskrifstofurnar keyptu sína þjónustu af, var líka í samkeppni við ferðaskrifstofurnar.  Þetta samkurl gafst illa þá og ég sé ekki að það komi til með að ganga betur nú.

Sá er reyndar munurinn að nú á Iceland Express flestar stærstu ferðaskrifstofurnar meðan Fluleiðir áttu á sínum tíma Úrval auk þess sem félagið sjálft seldi pakkaferðir út um allt í samkeppni við Samvinnuferðir Landsýn, Útsýn, Sögu, Atlantik ofl.  Það segir sig sjálft hver fékk bestu dílana. 

Það dugði Úrvali reyndar ekki.  Sú ferðaskrifstofa var alltaf illa rekin og á endanum losuðu Flugleiðir sig við hana í hendurnar á Útsýn og til varð ÚÚ. 

Vonandi að samkeppnisráð fygist nú grant með því sem gerist á ferðamarkaðnum.  Það er óþarfi að íslenskur almenningur þurfi að greiða hærra verð fyrir ferðalög sín þegar meirihluti ferðaþjónustunnar er komin á hendur einum útrásarvíkinganna.  Nóg er nú samt.

 


mbl.is Iceland Express eignast Ferðaskrifstofu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sauðahjörð

Það er með ólíkindum að fullorðið fólk taki þátt í sjálfsögðum mótmælum með hulin trýni á bak við klút. Hver á að geta tekið mark á mótmælum fólks sem ekki vill láta þekkja sig? 

Mótmælahrynan sem dunið hefur í höfuðborginni undanfarna mánuði er mjög af hinu góða.  Fólk þjappar sér saman og sýnir stjórnvöldum hver vilji þess er.  Vandamálið hjá okkur er bara það að það er engin hefð fyrir´kröfugöngum og mótmælum.  En þegar við erum búin að koma skipulagi á þetta besta baráttuvopn almennings fer það að virka.

Ég er nokkuð klár á að ráðherrar ríkistjórnarinnar ganga ekki allir áhyggjulausir til náða á kvöldin.  Nema því aðeins að þeir gefi skít í þjóðina sem þeir eiga að ÞJÓNA en ekki drottna yfir. 

Árni Matt og Björn Bjarnason hafa nú báðir fengið ákúrur frá umboðsmanni Alþingis og virtasti lagaprófessor þjóðarinnar hefur lýst því að þeir hafi brotið stjórnsýslulög.  Virðing almennings þrýtur með degi hverjum meðan þeir sitja í embætti og gefa skít í álit þjóðarinnar, umboðsmann Alþingis og Sigurð Líndal.  Þeir verða hart  dæmdir og tæplega verður þá að finna á framboðslistum flokks síns við næstu kosningar sem vonandi verða í vetur.

Geir Hilmar og Ingibjörg bera ábyrgð á því að þessir siðblindu lögbrjótar sitja enn í ráðherrasætum sínum.  Þeim verður legið á hálsi aumingjaskap af því þeir voru ekki reknir daginn sem umboðsmaðurinn birti álit sitt.

Ég er ekkert að fara fram á að nýjir stjórnmálaflokkar spretti upp eins og gorkúlur.  En það er alveg ljóst að kjósendur verða heldur betur að heimta vilja sinn þegar listarnir verða settir saman fyrir Alþingiskosningarnar með vorinu.  Það er deginum ljósara að Ingibjörg Sólrún er óhæf til að leiða Samfylkinguna sem er að verða að samspillingu undir hennar stjórn.  Varla verður Geir Haarde leiðtogi Sjálfstæðismanna mikið lengur en til vorsins. 

Í Framsóknarfjósinu eru kýrnar eitthvað að brölta um þessar mundir og kálfarnir að rífa sig af spenunum.  Þeir gefa greinilega skít í gömlu nautgripina sem þegar hafa lagt á flótta út úr fjósinu.  Þar fyrsti fjósamaður, Guðni Ágústsson, meðal þeirra sem leiðir flóttan.  Verður bæði skemmtilegt og fróðlegt að fylgjast með því hvernig nautin raðast á básana í byrjun febrúar.

Það er mörg verkefni framundan hjá sameinaðri íslenskri þjóð. Það mikilvægasta er að halda stjórnmálamönnunum á tánum.  Það gerist best með að sýna þeim hverjr það er sem valdið hefur ef á reynir.  Nefnilega þegnar lýðveldisins sem stjórnvöld eiga að þjóna en ekki öfugt.

Vona svo innilega að hinir stóru friðsælu mótmælafundir haldi áfram að vekja bæði þjóð og þing til dáða.  Ég hef séð hver áhrif samstaða fólksins getur haft á stjórnmálamenn í Noregi.  Bara nú síðustu vikuna hafa tugir þúsunda Norðmanna mætt í harðar mótmælagöngur að ísrelska sendiráðinu.  Heimurinn hefur séð hvernig Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra hefur brugðist við. 

Við Íslendingar getum þetta líka.  Viljinn er allt sem þarf sagði Gunnar Thor með svo eftirminnilegum hætti.  Ég trúði honum þá og trúi þessu enn.   


mbl.is Mótmæla við Landsbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landráðamenn eða í besta falli glæpamenn???

Að íslenskur banki skuli framselja veð í íslenskum fiskikvóta hlýtur að nálgast að vera landráð eða í besta falli glæpamennska nema hvort tveggja sé.  Ég hef alla tíð staðið í þeirr meiningu að fiskikvótinn væri, samkvæmt lögum, á íslenskum höndum.  Einnig að útlendingum væri bannað að eiga íslensk sjávarútvegsfyrirtæki.  Svo er það íslenskur banki, þar sem stjórnarformaðurinn kemur frá einu stærsta útgerðarfyrirtæki landsins og er um leið eigandi að stórum hluta kvótans, sem framselur veð í kvótanum til þýsks banka. 

Er þessi gjörningur í einhverju samhengi við það að stjórnarformaðurinn og útgerðarmaðurinn rekur einnig umsvifamikla útgerð í Þýskalandi.  Ég alla vega vona að það sé ekki raunin heldur sé þetta tilviljun og afrek ómerkilegs bankastjóra.

Þetta dæmi sýnir best að kvótinn er best geymdur í eigu íslenska ríkisins og að útgerðamenn geti keypt sér þar þann kvóta sem þeir hugsa sér að veiða á árinu.  Nákvæmlega eins og þegar við förum í Kaupfélagið og kaupum þar kornfleksið sem við ætlum að éta þessa vikuna.   Það er eina örugga tryggingin fyrir því að aðal auðlynd þjóðarinnar verði ekki gefin útlendingum.

Það eru talin landráð að leka ríkisleyndarmálum til útlendinga.  Njósnarar eru dæmdir sem landráðamenn.  Hvað má þá segja um menn sem gefa, ekki bestu, heldur lang bestu mjólkurkúna til samkeppnisaðilans.  Ég verð að segja eins og er að ég hefði aldrei trúað því að svona nokkuð gæti gerst. Og alls ekki í skjóli Máa.

Skil mæta vel vonbrigði þeirra Þorbjarnarmanna. Glitnir hefur greinilega rekið hnífinn í bakið á þeim. Nú verður fróðlegt að fylgjast með hvort bankamennirnir verði dregnir fyrir dómstóla og látnir sæta ábyrgð.  


mbl.is Erlendir bankar með veð í kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Jan. 2025

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband