Austri stóð fyrir sínu

Það var tími til kominn að Eyjamenn blönduðu sér aftur í hóp hinna bestu.  Þeir setja alltaf skemmtilegan svip á íslenska boltann og það er best þegar þeir eru í efstu deild.  Til hamingju Eyjamenn.

En það sem ég er glaðari yfir er að Austri skildi leggja Selfoss.  Það hefur verið á brattan að  sækja hjá mínum mönnum í sumar en þegar á reynir sýna þeir úr hverju við erum gerðir þarna fyriri austan.  Engir sætabrauðsdrengir þar á ferðinni. 

Var gott að lesa um 2 - 1 sigurinn þegar maður vaknað eldsnemma á laugardagsmorgninu í hjólhýsi á Glommubökkum. Er reyndar viss um að við hefðu landað stærri sigri ef leikurinn hefði farið fram á Eskifjarðarvelli en ekki á velli hjáleigunnar fyrir norðan Skarðið. En þeir þar og eins vinir okkar sem kenndir eru við krónuseðla verða auðvitað líka að fá að baða sig í Eskifjarðarljósunum af og til. Og það getum við vel unnt þeim.

Áfam Austri


mbl.is Eyjamenn fögnuðu efsta sætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ég vissum að Austragengið hefði kanski örlítin séns á að komast í lið Fjarðabyggðar ef þeir sæju sóma sinn í því að vera ekki sífelt úttroðnir af útsæði daginn út og inn!

viðar (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Dunni

Það er nú einmitt útsæðið sem hefur gert það að Eskfirðinarnir hafa ná að eignast fleiri  atvinniknattspyrnumenn en aðrar byggðir á Austurlandi.  Það var sérstaklega kröftugt útsæðið sem var soðið við eld af girðingastaurum sem sendir voru með útsæðinu austur á sínum tíma og áttu að halda kartöflurasinu í í öruggu skjóli fyrir rollum og öðrum búfénaði.  Sjálft girðingarefnið, gaddavírinn var grafinn í jörðu og e þar enn nema það sem nágrannar okkar beggja vegna við okkur grófu upp og nýttu sér í girðingarviðhaldi sínu.

En útsæðið er sælgæti, einkum þegar það kemur á haustmánuðum 5 mánuðum á eftir áætlun.  Þá var ekkert annað gera en að éta það. Ég geri frekar ráð fyrir að Krónuseðlarnir hafi potað því í frosna jörð og síðan orðið gapandi bit þegar þeir sáu uppskeruna vorið eftir.  Það er alla vega þeim líkt. 

Dunni, 14.9.2008 kl. 06:42

3 identicon

Snillingur ertu Dunni minn,það hef ég alltaf sagtog skál fyrir þér.

viðar (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 10:54

4 Smámynd: Halldór Jóhannsson

Áfram Austri........

Halldór Jóhannsson, 14.9.2008 kl. 19:44

5 Smámynd: Dunni

Það er ekki að ástæðulausu að mér þykir vænt um þig mágur sæll. Skál fyrir þér líka.  Svo þurfum við að fara kíkja í Whiskyglas saman áður en við verðum mikið eldri. Ég veit að við urðum of seinir að prófa Dimple flöskuna en það finnast jú fleiri og betri tegundir en Dimple

Dunni, 15.9.2008 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dunni
Dunni

Strákur frá Eskifirði sem starfað hefur við sjómennsku, blaðamennsku, kennslu og ýmis önnur störf frá fermingarárinu 1966. Bý og starfa í höfuðborg konungsríkisins Noregs núna og þvælist mikið í fjölmenningarsamfélagi borgarinnar.

orangetours.no 

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Tónlistarspilari

Alvin Lee - 11 - Love Like A Man [Live]

Nýjustu myndir

  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Búsáhaldabyltingin
  • Dirk Kuyt Liverpool T
  • Hermann Hreiðarsson stoppar Helstad
  • Illugi Gunnarsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband