Færsluflokkur: Bloggar
Það er sjálfsagt fyrir lífeyrissjóoðina að leita allra leiða til að bjarga verðmætum sínum úr rústum Kaupþings. Hugsanlega geta lífeyrissjóðirnir líka aukið tekjur sínar með kaupum á þrotabúinu og selt það aftur þegar búið er að koma löppunum undir reksurinn á ný.
Ég velt því hins vegar fyrir mér hvort það samræmist lögum um lífeyrissjóðina að standa í bankarekstri. Það þarf að tryggja að öll aðkoma sjóðanna sé með formelgum og lagalegum hætti og það gleymist ekki að lífeyrissjóðirnir eu til fyrir eigendur sína en þeir ekki til fyrir lífeyrisjóðina.
![]() |
Stefnt að niðurstöðu lífeyrissjóða á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er þarft framtak hjá Grindvíkingum. Með þessu efla þeir söguvitund heimamanna auk þess sem ferðafólk fær með sér mun meiri upplýsingar um sögu byggðar og atvinnuþróunnar í Grindavík. Saltfisksetrið er orðið þekkt víða um Evrópu fyrir matinn sem þar er boðið upp á og oftar en ekki er þegar maður hittir útlendinga sem verið hafa á Íslandi hafa þeir meir að segja frá heimsókn í Saltfisksetrið en í Bláa Lónið.
Saga Grindavíkur spannar yfir 1000 ár og segir okkur að allt frá Moldda Gnúpi og Hafur Birni hafi fólk komist vel af í Grindavíkinni.
![]() |
Söguskilti í Grindavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er örugglegaa hægt að hafa margar skoðanir á því sem Davíð sagði í Kasljósinu fræga. Eitt er þó alveg víst að hann talaði mjög óvarlega. Og það voru ekki bara Brown og Darling sem "miskildu" Davíð. Flest allir fjármálamenn sem tjáð hafa sig um ummælin eru á því að þau hafi í besta falli verið óheppileg. Sumir segja reyndar, útlendir seðlabankasjórar, að þau hafi verið "katastrofal" eða hræðileg.
En ummælin eru ekki það versta sem Davíð gerði. Heldur hitt að sinna ekki eftirlitsskyldu sinni þrátt fyrir fjölmargar aðvaranir frá erlendum bönkum og hagfræðisérfræðingum. Hann lét reka á reiðanum þar til honum datt í hug að hirða Glitni og þjóðnýta hann. Þar með kippti hann stoðunum undan tiltrú Íslands á alþjóða fjármálamörkuðum og setti þjóðina í tæknilegt gjaldþrot. Það er grafalvarlegt mál. Og sennilega er hann með þeirri aðgerð einni saman búinn að binda börn okkar og barnabörn á skuldaklafan næstu 2 áratugina.
![]() |
Hvað sagði Davíð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Richard Portes er bara einn fjölmargra viðskiptavísndamanna sem gefur Davíð Oddsyni falleinkunn fyrir störf sin. Norski Seðlabankastjórinn talaði gerðir Davíðs Oddssonar með þjóðnýtingu Glitnis sem skelfileg mistök sem hefðu rúið Íslendinga öllu traust á fjármálamörkuðum. Bein afleiðing þess er svo hrun krónunnar og gjaldþrot íslenska lýðveldisins.
En það er alveg ljóst að Íslendingar sitja uppi með handónýtan seðlabankastjóra svo lengi sem sá hinn sami nýtur "fulls traust" forsætisráðherrans Geirs Haarde. Ábyrgð Geir er því ekki lítil þegar upp er staðið.
Þangað til getum við sem búum í útlöndum haldið áfram að vakna upp við blaðagreinar eins og þessa sem segir að Íslendingar eigi ekki gjaldeyri til að kaupa matvæli fyrir, hvað þá munaðarvöru eins og fatnað.
http://e24.no/utenriks/article2709737.ece
![]() |
Dýr pólitík til heimabrúks" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í fréttum norsku sjónvarpsstöðvanna í morgun kom það fram að með yfirtökuni á Kaupþingi séu Norðmenn að koma í veg fyrir að stórar fúlgur verði fluttar úr landi, til Íslands.
Kaupþing á verulegan hlut í Stóra Brandi, stærsta tryggingafélagi Noregs og stjórnvöld hér í landi telja það mikilvægt að sá hlutur fari hvergi.
Norsk stjórnvöld treysta ekki Íslendingum eftir aðgerðir Seðlabankans gegn Glitni
![]() |
Norðmenn yfirtaka Kaupþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er gott að Ingibjörg er að hressast. Og ekki ber á öðru en baráttuviljin sé í brjósti hennar og það er líka gott. Það sem er ekki eins gott er að hún fyrst núna opinberar jafn sterkan vilja til að sækja um aðild að ESB.
Hún svaf á verðinum nákvæmlega eins og félagar hennar í ríkistjórninni og sauðahjörðin í Seðlabankanum. Mér þykir það líka bjartsýni hjá utanríkisráðherranum að halda að með því að pakka í vörn hverfum við aftur tilþess tíma sem var 1994. Ég er nær viss um að með varnarleiknum hverfum við aftur til þeirra tíma sem voru fyrir síldarævintýrið sem hófst í lok 6.áratugar síðustu aldar. Við eru nánast á byrjunarreit. Gjaldþrota þjóð með vitsmuni okkar og náttúruauðlindir að vopni. Það er alls ekki svo slæmt en við þurfum að búa okkur undir breytt neyslumunstur í nýju samfélagi.
Læt hér fylgja með video af blaðamannafundi norskra stjórnvalda með Svein Gjerdrem, Seðlabankastjóra Noregs. Þegar maður ehfur hlustað á ca2/3 afviðtalinu við Gjerdrem gefur hann félaga sínum í íslenska Seðlabankanum einkunn. Falleinkunn með skömm.
http://www.tv2nyhetene.no/innenriks/okonomi/article2293608.ece
![]() |
Ingibjörg Sólrún: Fyrst IMF og svo ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 07:17 (breytt kl. 07:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú lemur það vel í ljós að okkur virðast flestar bjargir bannaðar aðrar en að leita á náðir IMF. Í upphafi krísunnar virtist það vera síðasta leið sem stjórnvöld gátu hugsað sér vegna þess að þá myndu sjóðurinn taka yfir efnahagsstjórn lýðveldisins. Það þýðir að þjóðin er gjaldþrota og rúmlega 60 ára sjálfstæði þjóðarinnar glatað.
Vegna fyrri yfirlýsinga sinna um IMF er tími til kominn að stjórnvöld geri stjórnarandtöðunni og þjóðinni allri grein fyrir því her staða hennar raunverulega er. Getur það verið rétt sem bæði ínslenskir og erlendir efnahagssérfræðingar segja að íslensk stjórnvöld séu á rangri leið í leit að lausnum og vinni alltof hægt og ómarkvisst.
Nú viljum við fá svör um raunverulega stöðu lýðveldisins Ísland.
![]() |
Fundað stíft með IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 13.10.2008 | 06:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það verður fróðlegt að fylgjast með átandinu í Litháen eftir kosningarnar. Mesta líkur eru á að skipt verði um stjórn og þá verður gaman að fylgjast með þvi hvort þetta nýja ESB land nær þeim tögum á efnahagsástandinu að það fái leyfi til að taka upp evruan.
Í dag er verðbólgan of há og stjórn efnahagsmála of veik. Þess vegna sögðu menn nei í Brussel er Litháen sóttist eftir að fá að taka upp evruna.
Minnir örlítið á stjórn efnahagsmála á Íslandi sem hlotið hefur falleinlunn, ekki bara innan ESB, heldur um allan heim síðsut vikurnar.
![]() |
Íhaldsmenn sigruðu í Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.10.2008 | 20:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndin er tekin um borð í Krossanesi SU 320 á síldinni við Svalbarða árið 1968
Gaman fyrir Hólmara að fylgjast með síldveiðunum út um eldhúsgluggan. Alltaf þegar maður fréttir af síldiinni inni á fjörðum. Minnir á gamla góða daga síldaráranna fyrir austan Þegar Reyðarfjörðurinn var fullur af síld.
Svo var það haustið 1988. Þá fylltist fjörðurinn aftur af síld og nánast allur síldarflotinn snérist á torfu sem náð þvert af öskuhugunum á Eskifirði út fjörðinn og inn að Hólmum hinu megin við Hólmanesið. Þetta var sannkallað bonaza tímabil.
![]() |
Á síld innan við Stykkishólm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.10.2008 | 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Trúverðileiki íslenskra stjórnvalda hefur beðið skipbrot, bæði á Íslandi sem og í heiminum, í efnahgasþrengingunum síðustu vikur. Og með skipuninni í bankráði Nýja Glitnis beit ríkistjórnin höfuðið af skömminni þegar hún skipar sem formann bankaráðsins fyrrum bankaráðsmann í Seðlabankanum og núverandi aðstoðarmann viðskiptaráðherra. Þessi ágæti maður er einn af þeim sem ber höfuðágbyrgð á grandvaraleysi stjórnvalda sem flutu sofandi að feigðarósi þrátt fjölda margar aðvaranir bæði innlendra og erlendra sérfræðinga í efnahagsmálum.
Þessi aðgerð er ámóta heimskuleg og að setja mann sem er meðvirkur í morði sem dómara yfir sjálfum sér. Bara þetta litla dæmi sýnir að viðskiptaráðherra ræður enganvengin við verkefni sitt og að nýji bankaráðsformaðurinn er gersamlega blindur á eigin gerðir. Hann er ábyrgðarlaus með öllu og kannski líka siðblindur? Ekkert veit ég um það.
Nú er semsagt búið að opna fyrir að stjórnvöld geta farið að leika sér Glitni og deila honum út til vina og vandamanna þegar þar að kemur. Spillingin er ekkrt að minnka á Íslandi.
Bara til að benda á eitt lítið dæmi um hvernig menn sjá mistök íslenskra stjórnvalda í útlöndum má benda á blaðamannafundinn sem Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs ásamt Kristinu Halvorsen viðskiptaráðherra og Svein Gjerdrem Seðlabankastjóra.
Á þeim fundi kom fram að fyrst eftir hrunið á Íslandi fór bankakrísan að gera vart við sig í Noregi. Einu bankarnir sem norsk yfirvöld hafa þurft að koma til aðstoðar eru íslensku bankarnir Kaupþing og Glitnir sem reyndar er norskur banki í eigu Íslendinga.
Svein Gjredrem sagði á fundinum að þjóðnýtingin á Glitni væri dæmi um hrikaleg mistök Seðlabankans. Sú aðgerð gereyðilagði alla tiltrú að stjórn íslenskra efnahagsmála og gróf undan gengi kronunnar með þeim afleiðingum sem allur heimurinn veit nú. Þetta segir umheiminum það að Davíð Oddsson ásamt Geir Haarde og Björgvini Sigurðssyni eru þeir þrír einstaklingar sem gersamlega hafa brugðist trausti þjóðarinnar þegar það mátti alls ekki bregðast.
Þessir menn, ásamt Framsóknarflokknum, bjuggu til lagaramman utan um leikskólann sem útrásarvíkingarnir léku sér í. Þeir héldu sér innan við lagaramman meðan eftirlitið svaf á verðinum. Svo þegar Davíð, Geir og Björgvin vakna gripu þeir í fátinu til verstu ráðstafana sem hugusast gátu. Eftir liggur íslensk þjóð í tæknilegu gjaldþroti.
http://e24.no/utenriks/article2708267.ece
http://www.dn.no/forsiden/utenriks/article1510474.ece?jgo=c1_re_left_5
http://www.dn.no/forsiden/borsMarked/article1510509.ece?jgo=c1_re_left_1
![]() |
Stjórn Nýja Glitnis skipuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 12.10.2008 | 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tónlistarspilari
Tenglar
Mínir tenglar
- Orange Tours Dekur og Spaferðir
- Flickr Myndirnar mínar
- AP
- Samfylkingin
- Vinstri grænir
- Frjálslyndir
Bloggvinir
-
stebbifr
-
adhdblogg
-
alla
-
adalsteinnjonsson
-
arogsid
-
pelli
-
kaffi
-
beggipopp
-
bjarnihardar
-
bokakaffid
-
gattin
-
disadora
-
fannarh
-
gislisig
-
gretaulfs
-
gretarro
-
jyderupdrottningin
-
gudrununa
-
gthg
-
hafsteinnvidar
-
heidistrand
-
hehau
-
helgigunnars
-
hermingi
-
drum
-
disdis
-
ingabaldurs
-
veland
-
jakobk
-
jonkjartansson
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonerr
-
kalli33
-
ktomm
-
loopman
-
st1300
-
7-an
-
palmig
-
krams
-
ragnarb
-
raggiraf
-
ragnar73
-
ridartfalls
-
sng
-
snorribetel
-
vefritid
-
thormar